fasteignasölur.is
Kópavogsbraut 70
1 af 62

Um eignina

Einstaklega fallegt útsýni og frábær staðsetning í vesturbæ Kópavogs. Eignin er vel skipulögð og nýtast fermetrar eignarinnar vel. Birt stærð 162,8 fm og þar af bílskúr 30,1 fm. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni. Sér þvottahús á hæðinni og geymsla. Tvær snyrtingar. Sér inngangur, útsýnissvalir og fleira prýða þessa fallegu eign. 

Hér getur þú skoðað eignina í 3 D
 
Nánari lýsing:

Komið er inn um sér inngang í anddyri sem eru flísar á gólfi og er svo gengið upp teppalagðan stigagang með mikilli lofthæð upp á stigapall á annari hæð sem er með góðum skáp. Þaðan á hægri hönd er gengið inn í þvottahús. Flísar eru á gólfi, tengi fyrir þvottavél, þurrkara og ískáp. Innan af þvottahúsinu er geymsla með flísum á gólfi. Gestasnyrting er svo við hliðina á þvottahúsinu, þar eru flísar á gólfi, salerni og handlaug. Gengið er inn í parketlagt alrými. Á vinstri hönd er herbergi. Stofa og borðstofa eru parketlagðar, nýlegt eldhús er opið við stofu. Parket er á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi, helluborði og bakaraofn í vinnuhæð. Svo er gengið inn í stofu/borðstofu. Stórir gluggar sem gefa frábært útsýni til suðurs og gerir rýmið einstaklega bjart. Svefnherbergi eru fjögur talsins og er parket á gólfum herbergja. Baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu, sturtugleri, salerni, handlaug hvítri innréttingu og brúnum stórum skáp. Lóðin er fallega ræktuð sem snýr í suður og vestur. Bílskúrinn er rúmgóður með köldu vatni sem og rafmagni. Búið er að gera rúmgóða geymslu innst í bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason as@hofdi.is, Gsm 895- 3000.-
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Höfði Fasteignasala
145.000.000 kr.891 þ./m²
+45,0% á 3 árum
9. nóvember 2023Fyrsta sala
100.000.000 kr.614 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kópavogsbraut 70

200 Kópavogur
145.000.000 kr.891 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1966TegundFjölbýlishúsStærð162,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20635482Fasteignamat96.000.000 kr.Brunabótamat77.010.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 62 myndir

Upp ↑