1 af 50
Um eignina
Spánarheimili kynnir: Falleg 165 m² einbýli sem standa á 400m² lóð. Húsin standa á einstakri staðsetningu þar sem útsýni er óhindrað bæði til fjalla og sjós. Hér ertu umkringdur fallegri náttúrunni og mikilli kyrrð.
Á aðalhæðinni er eldhús í nútímastíl sem tengist fullkomlega við rúmgóða stofu og borðstofu með beinum aðgangi að veröndinni og útisvæðinu, þar sem þú getur notið einkasundlaugarinnar — fullkominn staður til að njóta útiverunnar í veðurblíðunni. Einnig er á hæðinni svefnherbergi með baðherbergi innaf ásamt gestasalerni.
Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Einnig er útgengt á svalir úr báðum herbergjum.
Boðið er upp á 46 m² þaksvalir fyrir þá sem það vilja þar sem þú getur dáðst að fallegu útsýni yfir hafið og fjöllin og koma þær sem aukakostnaður við verðið á húsinu.
Um svæðið:
Polop, sem staðsett er í hjarta Costa Blanca svæðisins á Spáni, er sannkölluð perla með heillandi þröngum götum, notalegum torgum og hrífandi landslagi. Þorpið, sem stendur upp á hæð, býður upp á ótrúlegt útsýni yfir nærliggjandi fjöll og hafið, sem gerir það að kjörnum áfangastað fyrir þá sem leita friðar og náttúrufegurðar í sinni tærustu mynd.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 4048
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170126/new-build-villa-in-a-unique-location-with-sea-view-in-polop/
Spánarheimili kynnir - La Nucia/Polop
1053 Spánn - Costa Blanca
87.600.000 kr.531 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð165 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Allar 50 myndir
Upp ↑
















































