fasteignasölur.is
Vista Lago
1 af 11

Um eignina

Jónas H. Jónasson löggiltur fasteignasali kynnir nútímalegar íbúðir sem eru staðsettar í San Miguel de Salinas, stutt í alla þjónustu, ströndinni og mörgu glæsilegum golfvöllum.
Kjarninn samanstendur af tveimur byggingum sem aðskildar eru með sameiginlegu garðsvæði með gróðri. Alls eru í boði 56 íbúðir með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum, hver íbúð með sér svalir. Íbúðirnar eru hannaðar með þægindi og orkunýtni í huga.
Sameiginlegt rými á jarðhæð er hannað sem félagslegt hjarta byggðarinnar, umkringt grónum görðum, setsvæðum, hjólageymslu og leiksvæði fyrir börn. Þetta er kjörinn samkomustaður fyrir íbúa á öllum aldri. Á þakinu bíður glæsilegt 350 m² afþreyingarsvæði. Þar er meðal annars 70 m² sundlaug með sér svæði fyrir börn, pergólur, sólstólar og hvíldaraðstaða, sem gerir íbúum kleift að slaka á og njóta víðáttumikils útsýnis. Auðvelt er að komast á þakið með einni af þremur lyftum.
Byggingin er staðsett í heillandi smá bænum San Miguel de Salinas, aðeins 10 km frá Miðjarðarhafinu. Svæðið er þekkt fyrir nálægð við saltvötn og einstakt örloftslag sem talið er eitt það heilnæmasta í Evrópu. Þessi rólegi en líflegi bær gerir íbúum kleift að njóta hins ekta miðjarðarhafslífsstíls, á sama tíma og stutt er í verslanir, veitingastaði, matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Alicante-flugvöllur er í 60 km fjarlægð og Murcia Corvera-flugvöllur í 55 km fjarlægð.  Smellið á linkinn fyrir frekari upplýsingar http://www.masainternational.is/prop/2402J eða hringið í 555-0366..
 

Vista Lago

1000 Útlönd - Annað
18.590.000 kr.387 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn
TegundFjölbýlishúsStærð48 m²Herbergi1LyftaFasteignanúmerF9999999
Skráð hjá
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Allar 11 myndir

Upp ↑