fasteignasölur.is
Hlíðarvegur 2
1 af 39

Um eignina

Miklaborg kynnir: Fallegt einbýlishús á góðum stað í Grundarfirði. Stór lóð fylgir eigninni og tvöfaldur bílskúr sem er um 50 m². Húsið er með stórum stofum og búið er að byggja fallega 30 m² sólstofu sem snýr út í garðinn.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu og þar fyrir framan eru stórar stofur ásamt 30 m² sólstofu sem snýr út í garðinn. Gengið er upp tröppur á efri hæð og þar er rúmgott hjónaherbergi með svölum og til hliðar er baðherbergi. Til hliðar við stofur á aðalhæð hússins er eldhús og svefnherbergi sem í dag er nýtt sem skrifstofa. Á neðri hæðinni er svefnherbergi ásamt gufubaði og sturtu. Húsið er tvískipt en í miðju þess er opið rými og þar eru stofa, þvottahús og geymsla. Gólfefni á húsinu eru ýmist parket eða flísar. Tvöfaldur bílskúr sem er tæplega 50 m² fylgir eigninni og er innangengt úr honum í húsið. Vel má hugsa sér að vera með atvinnustarfsemi í hluta hússins og bílskúr enda sér aðkeyrsla að bílskúrum og malbikað bílaplan. Nóg af bílastæðum er á lóð hússins sem er 1.415 m².


Fallegt hús á góðum stað í bænum og einungis nokkra mínútna gangur í skóla og þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 - throstur@miklaborg.is

Hlíðarvegur 2

350 Grundarfjörður
Tilboð
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1964TegundEinbýlishúsStærð365,8 m²Herbergi11InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2115139Fasteignamat58.600.000 kr.Brunabótamat159.250.000 kr.
Skráð hjá
Þröstur ÞórhallssonLöggiltur fasteignasali597-0634 · throstur@miklaborg.is
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑