fasteignasölur.is
Hvassaland 5
1 af 24

Um eignina

Eignaver 460-6060

Hvassaland 5 - Hálönd.
Nýlegt, fallegt og sérlega vandað fjögurra herbergja, heilsárshús á fallegum stað við ræturs Hlíðarfjalls. Einstakt útsýni.


Húsið er samtals 108,7 fm., þar er m.a. baðherbergi með aðgengi að heitum potti í sérstöku rými og auka snyrting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsið skiptist í forstofu, geymslu, snyrtingu, þrjú svefnherbergi, stofu/eldhús sem eru eitt rými, baðherbergi með sturtu, þaðan er gengið inn í yfirbyggt rými með heitum potti.
 
Forstofa er rúmgóð, fatahengi, flísar á gólfi.
Snyrting með upphengdu salerni, innréttingu með vaska, pláss fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, á gólfi eru flísar.
Svefnherbergi eru þrjú, með  fataskápum, á gólfi eru flísar.
Stofa og eldhús er eitt rými, flísar á gólfum, hvít innrétting með góðum skápum, innbyggð uppþvottavél fylgir með.
Úr stofu er hægt að ganga út á steypta verönd, inn í rýmið þar sem heiti potturinn er.
Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, hvít innrétting, flísar á gólfi.
Geymsla, þar eru inntök húss og loftskiptibúnaður. Gólf er flísalagt.

Annað:
- Malbikað bílastæði. 
- Snjóbræðsla er í pöllum og stéttum hússins, lokað kerfi.
- Gólfhiti í húsinu.
- Loftskiptakerfi.
- Innbúið er einnig til sölu fyrir utan persónulega muni. 

                                            *** Virkilega vandað og fallegt hús með einstöku útsýni. ***


Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
 
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is





 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaver fasteignasala ehf.
89.900.000 kr.827 þ./m²
+100,2% á 6 árum
16. júní 2020Fyrsta sala
44.900.000 kr.413 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hvassaland 5

601 Akureyri (dreifbýli)
89.900.000 kr.827 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2020TegundSumarhúsStærð108,7 m²Herbergi4InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF25075982Fasteignamat74.500.000 kr.Brunabótamat76.300.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑