fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Villamartin
1 af 27

Um eignina

Íbúð á neðri hæð í rólegum kjarna í La Florida, Orihuela Costa. La Florida er hverfi sem er staðsett við Villamartin og La Zenia. Stutt er í allar nauðsynlegar þjónustur, veitingastaði og aðrar afþreyingu á svæðinu eins og Zenia Boulevard, sem er í aðeins nokkra mínútu fjarlægð frá þessarri eign Um er að ræða íbúð á neðri hæð sem er 53 m2 með tveimur svefnherbergjum og einu fullbúnu baðherbergi. Stofan og eldhús eru saman í opnu rými þegar gengið er inn í íbúðina og fyrir framan ertu með þægilega verönd og garð.  Íbúðin er staðsett fyrir framan sameiginlegu sundlaug kjarnans sem eigendur fá afnot af Íbúðin er nýlega búin að vera tekin í geng og allt endurnýtt og er seld með húsgögnum Nánar um svæðið Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. --- Eignarnúmer: 2177 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170173/ground-floor-apartment-in-la-florida-orihuela-costa/

Spánarheimili kynnir - Villamartin

1053 Spánn - Costa Blanca
24.800.000 kr.468 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
TegundFjölbýlishúsStærð53 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 27 myndir

Upp ↑