fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - San Miguel
1 af 41

Um eignina

Einbýlishús, samtals 210 fm, í Bellavista íbúðarkjarnanum í San Miguel með einkasundlaug á tveimur hæðum með stórum bílakjallara undir húsinu.  Eignin er vel staðsett á hæð með fallegu útsýni til sjávar og yfir saltvötnin. Las Colinas, La Finca og Campoamor golfvellirnir eru örstutt frá. Nánari lýsing: Eignin er á tveimur hæðum plús kjallari.  Jarðhæðin skiptist í alrými með rúmgóðri stofu og stóru opnu eldhúsi, svítu með sér baðherbergi og útgengi út á verönd. Einnig er gestasalerni á jarðhæðinni. Efri hæðin er stór hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Útgengi úr svítunni á stóra verönd með glæsilegur útsýni yfir sveitirnar í kring, MIðjarðarhafið og saltvötnin í Torrevieja. Bílakjallarinn er undir öllu húsinu og er í dag opið rými en það eru margir möguleikar fyrir eiganda að hanna rýmið að sínum óskum sem íbúðar- eða tómstundarými eða nýta eins og það er uppsett fyrir bílaáhugamenn, í rýminu er fullbúið baðherbergi með sturtu. San Miguel de Salinas dæmigerður spænskur bær staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Mikill sjarmi er yfir bænum og næsta nágrenni, mikil sítrónu, ólífu og melónurækt er á svæðinu sem gerir umhverfið einstaklega fallegt.  Öll helsta þjónusta er í bænum og nágrenni hans. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2181 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170177/detached-houses-in-san-miguel-de-salinas/

Spánarheimili kynnir - San Miguel

1053 Spánn - Costa Blanca
76.900.000 kr.366 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 4 bað
TegundEinbýlishúsStærð210 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 41 myndir

Upp ↑