fasteignasölur.is
Bláargerði 19
1 af 30

Um eignina

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is
 

Nýlegt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, þremur rúmgóðum svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum, fallegum garði, stórri timburverönd og steyptu bílastæði með snjóbræðslukerfi. Húsið var byggt árið 2022.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með upptekið loft, parket á gólfi og útgengt á stóra timburverönd. Í eldhúsi er falleg innrétting með eyju og góðu vinnuplássi. Baðherbergi er flísalagt og með fíbó-plötum á veggjum. Þar er baðkar með sturtu í, falleg innrétting og handklæðaofn. Útgengt er úr baðherbergi í bakgarð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum en fataherbergi inn af hjónaherbergi. Flísalagt og glæsilegt baðherbergi með sturtu er einnig inn af hjónaherbergi. Þvottahús er afar rúmgott með góðri innréttingu, flísum á gólfi og útgengt í bakgarð. Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er flísalagður og vel frágenginn með breiðri bílhurð og sjálfvirkum opnara.
Fallegt og vel skipulagt einbýlishús í mjög góðu ástandi – byggt 2022.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · INNI fasteignasala
95.500.000 kr.519 þ./m²
+24,8% á 4 árum
31. ágúst 2022Fyrsta sala
76.500.000 kr.416 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bláargerði 19

700 Egilsstaðir
95.500.000 kr.519 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2022TegundEinbýlishúsStærð184,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23398971Fasteignamat91.250.000 kr.Brunabótamat97.900.000 kr.
Skráð hjá
INNI fasteignasala
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑