fasteignasölur.is
Sunnubraut 46
1 af 118

Um eignina

Miklaborg og Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali kynna Sunnubraut 46 í Kópavogi – einstakt heimili sem kemur afar sjaldan á markað.

Húsið stendur hátt á fallegri hornlóð og býður upp á glæsilegt útsýni. Það var teiknað af Guðmundi Þór Pálssyni, einum áhrifamesta arkitekt sjöunda áratugarins, sem lét eftir sig fjölda opinberra bygginga og merkilegra einbýlishúsa.

Sunnubraut 46 ber greinileg einkenni hans, skörp form, háir skjólveggir, stórir gluggar og birta sem flæðir fallega um rýmið. Húsið hefur sterka nærveru, mikinn karakter og sinn einstaka stíl.


Bókið einkaskoðun hjá Báru fasteignasala í síma 899-8809 eða sendið póst á bara@miklaborg.is


Komið er inn í mjög rúmgott anddyri en gólfhiti er í öllum gólfum á neðri og efri hæð, utan hjónaherbergis sem er með hefðbundnum ofnum.

Neðri hæðin er með heilsteyptum terrazo-flísum sem slípaðar eru á staðnum og settar í álramma, en á efri hæðinni er náttúrusteinn ásamt gegnheilu parketi.

Á neðri hæðinni voru áður fimm svefnherbergi, en þrjú þeirra hafa verið sameinuð í rúmgott alrýmiEitt þeirra er nýtt sem skrifstofa í dag. Einnig er þar baðherbergi með sturtu, miklir forstofuskápar ásamt geymslum og innangengt er í bílskúrinn. 

Fallegur stigi leiðir upp á efri hæðina þar sem stórar og bjartar stofur taka við. Í stofunni er glæsilegur arinn, sem er miðpunktur rýmisins, fullkominn til að skapa hlýleika. Útgengt er úr stofunni á stórar útsýnissvalir sem liggja meðfram framhlið hússins og bjóða upp á einstakt útsýni yfir voginn og til Reykjaness. Þar er notalegt að njóta dagsins og náttúrunnar, hvort sem er í sólinni yfir daginn eða við sólarlag á kvöldin. Á austurhlið hússins er einnig notaleg verönd þar sem morgunsólin skín inn. Í eldhúsi er Bulthaup innrétting með Gaggenau og Sub-Zero tækjum. Þar er mikið skápapláss og beint útgengi í bakgarð, þar sem gengið er upp á verönd.

Rúmgóð borðstofa er samliggjandi eldhúsi. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með miklu skápaplássi. Tvö baðherbergi eru á hæðinni, annað með baðkari og sturtu.


Allir gluggar hússins hafa verið endurnýjaðir með vönduðum hætti, sem undirstrikar vel viðhaldið á húsinu. Allar stéttar utan húss og heimreið eru upphitaðar, sem auðveldar alla umhirðu á köldustu dögum ársins.

Húsið hefur verið mikið endurbætt með virðingu fyrir upprunalegum stíl þess og er í góðu ástandi. Að auki er rúmgóður garður umhverfis húsið með stæði fyrir nokkra bíla. Göngu- og hlaupaleiðir um Kársnesið gera þetta svæði bæði eftirsóknarvert og fjölskylduvænt.


Einstök eign sem á sér fáa líka. 


Nánari upplýsingar veitir Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Sunnubraut 46

200 Kópavogur
Tilboð
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
Byggingarár1965TegundEinbýlishúsStærð335,6 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2065497Fasteignamat197.750.000 kr.Brunabótamat152.390.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 118 myndir

Upp ↑