fasteignasölur.is
Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502
Opið hús 12. sept. kl. 14:00–14:30
1 af 18

Um eignina

--- Glæsileg þakíbúð með þaksvölum, tveimur bílastæðum í bílakjallara, 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, mikilli lofthæð og fallegu útsýni ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.nordurhlid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Urriðaholtsstræti 15 í Urriðaholti, 210 Garðabæ fyrir 50 ára og eldri. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð. 

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 502: Er glæsileg 158,3 fermetra fjögurra herbergja íbúð á fimmtu hæð með rúmgóðum 48,6 fermetra svölum og svalalokun að hluta. Afar glæsilegt útsýni er frá íbúðinni. Stór geymsla (12,9 fm) fylgir íbúðinni sem er staðsett við bílastæðin í bílakjallara. Afhending er við kaupsamning.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi (þar af er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi), 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á þaksvalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Tvö bílastæði í bílakjallara með stórri geymslu staðsettri við bílastæði.

Ath: Ljósmyndir í auglýsingu eru af sýningaríbúð og þurfa því ekki að endurspegla skipulag þessarar íbúðar.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.nordurhlid.is

Húsin eru vel staðsett steinsnar við Heiðmörk. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502

210 Garðabær
198.000.000 kr.1.251 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð158,3 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253484321Fasteignamat89.800.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Allar 18 myndir

Upp ↑