fasteignasölur.is
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
1 af 27

Um eignina

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝLEG ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ* *SÉRGARÐUR* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA* *EIGN Í SÉRFLOKKI, EINS OG NÝ*  *HÚSGÖGN FYLGJA* 

Nýleg og vönduð 3ra herbergja íbúð á jarðhæð á besta stað í lyftuhúsi á golfparadísarsvæðinu Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Tvö svefnherbergi með fataskápum og tvö baðherbergi. Rúmgott eldhús opið við stofu, útgengt á 18 fm sérverönd / garð frá stofu og þaðan er gengið beint út í sameiginlegan glæsilegan sundlaugargarð. Stæði í bílakjallara. Eignin er sem ný, allt í topp standi.

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 893 2495


Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang inn í opið alrými. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Eldhús er skemmtilegt og opið inn í stofu og borðstofu, og frá stofu er rennihurð út á 18 fm verönd / garð. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og baðherbergi beint inn af öðru þeirra. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Miðstýrt innfellt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita. 

Eignin afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum.
Eigninni fylgir vel staðsett og rúmgott stæði í lokuðum bílakjallara.

Um er að ræða nýlega, glæsilega eign í fallegu fjölbýli, í hjarta Orihuela Costa, í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli. 

Verð: 265.000 evrur eða 38.400.000 ISK (m.v. gengi 145 ISK)

Stutt í La Fuente verslunar- og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, s.s. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, bílastæði, sér garður, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

1000 Útlönd - Annað
38.400.000 kr.565 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð68 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF102230426
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 Reykjavík, 108Sími893-2495

Allar 27 myndir

Upp ↑