fasteignasölur.is
Breiðbraut 672
1 af 32

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgott og bjart 169,9 fm. 4ra herbergja raðhús með sólpalli að Breiðbraut 672 í Reykjanesbæ. 
Húsið er vel skipulagt, bjart og snyrtilegt.  Eignin skiptist í tvær hæðir.  Fyrsta hæð skiptist í: stofu, eldhús, inngang, baðherbegi, gestasalerni, geymslu og þvottahús. Á annari hæð eru: hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi með baðkari og gangur.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri er með góðum fataskápum sem ná upp í loft, flísar á gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu, með snyrtilegri innréttingu, parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á sólpall.  
Baðherbergi er með sturtu, salerni,flísar á gólfi og vegg.
Gestasalerni hefur verið endurnýjað á snyrtilegan hátt.
Geymsla er rúmgóð.

Efri hæð:
Komið inn á parketlagðan gang en þar eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og skápum upp í loft.
Svefnherbergi II, rúmgott, með skáp og parket á gólfi
Svefnherbergi III, með stóran skáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskur, baðkar með sturtuaðstöðu. Nýjar gólfflísar.

Raðhúsið er á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veita Kristín María Stefánsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 837-1177 / kristin@trausti.is
Katarzyna Kleinschmidt, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 774-2730 / katarzyna@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.000.000 kr.406 þ./m²
+38,3% á 4 árum
13. júlí 2022Fyrsta sala
49.900.000 kr.294 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Breiðbraut 672

262 Reykjanesbær
69.000.000 kr.406 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 3 bað
Byggingarár1970TegundRað-/parhúsStærð169,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23087883Fasteignamat60.300.000 kr.Brunabótamat75.570.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑