fasteignasölur.is
Háholt 27
1 af 28

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í sölu: Vel skipulagt 118 fm parhús á tveimur hæðum, fjögur svefnherbergi. Húsið er staðsett í rólegri botnlangagötu miðsvæði á Akranesi, í göngufæri við verslun, þjónustu og aðra nauðsynlega innviði. Eignin telur á neðri hæð forstofu, hol, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, tvö fín svefnherbergi, þvottahús / geymsla. Á efri hæð Hol og tvö svefnherbergi.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Komið er inn í forstofu, án gólfefna, hol með parketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi, innrétting máluð, tengi fyrir uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, annað stúkað af stofurými.
Baðherbergi er flísalagt, með fínni innréttingu, sturtu og handklæðaofni, gluggi er á baðherberignu.
Þvottahús / geymsla innaf eldhúsi, stórt rými sem rúmar þvottahús og geymslu, þarfnast viðhalds og lokafrágangs, útgengt á lóð.

Efri hæð:
Stigi er teppalagður.
Hol parketlagt með þakglugga, nýtist vel sem sjónvarpshol.
Tvö fín herbergi með parketi á gólfi, hjónaherbergi stórt með glugga á gafli hússins.

Lóð er afgirt. Innkeyrsla hellulögð, lítill geymsluskúr á baklóð.
Endurbætur, húsið verið talsvert endurnýjað á síðustu árum, m.a gólfefni, ofnar og rafmagnstafla endurnýjað að hluta. 

Þetta er vel skipulagt parhús með fjórum svefnherbergjum - laust til afhendingar fljótlega. 
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
59.900.000 kr.508 þ./m²
+14,1% á 1 ári
24. mars 2025Þinglýstur kaupsamningur
52.500.000 kr.445 þ./m²
+45,8% á 4 árum
25. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
36.000.000 kr.305 þ./m²
+71,4% á 5 árum
25. febrúar 2016Fyrsta sala
21.000.000 kr.178 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Háholt 27

300 Akranes
59.900.000 kr.508 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundRað-/parhúsStærð118 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21014576Fasteignamat53.250.000 kr.Brunabótamat51.400.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑