fasteignasölur.is
Búðarstígur 23
1 af 8

Um eignina

Iðnaðar-, geymslu- eða lagerrrými við Búðarstíg 23A bil 104 á Eyrarbakka. 
Glæsileg atvinnu-, frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri lóð Búðarstíg 23, Eyrarbakka. Um er að ræða endurbyggingu og breytingu á atvinnuhúsnæði. Allt buðarvirki útveggja er steypt. Húsnæðið er einangrað að utan og húsið klætt með bárujárni. Búið er að ganga frá lóð með malbikuðum yfirborðsfrágangi. Gönguhurð og innkeyrsluhurð er inn í öll bil. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 61,5fm. 

Nánar um eignina:

Bilið er fullfrágengið.
Vegghæð við útvegg er 3,98 metrar og mænishæð 5,2 metrar bili.  Möguleiki á millilofti ca. 30-40m2
WC með handlaug  
Niðurfall í gólfum.
Hitaveita er sér fyrir öll bilin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi.  
Innkeyrsluhurð er 3,4 metra há, breidd 3,5m og inngönguhurð við hlið hennar fyrir hvert bil.
Raflögn er með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir hvert bil. 
Lýsing í loftum.

Engin virðisaukaskattskvöð er á húsnæðinu. 
Húsnæðið er staðsett í 40 mín akstri frá Reykjavík

Eyrarbakki er vinalegt þorp við Suðurströndina sem státar af mikilli sögu, varðveittum gömlum húsum og fallegri náttúru. Í fjörunni er fjölbreytt náttúra og dýralíf sem vert er að upplifa.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Búðarstígur 23

820 Eyrarbakki
23.900.000 kr.389 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1966TegundAtvinnuhúsnæðiStærð61,5 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25243101Fasteignamat8.270.000 kr.Brunabótamat11.150.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑