fasteignasölur.is
Almannadalur 9
1 af 4

Um eignina

Trausti fasteignasala, Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu eignina Almannadalur 9, 161 Reykjavík, glæsileg nýbyggð hesthús með stórum og rúmgóðum kaffistofum fyrir eiganda fyrir ofan. Alls eru þetta fjögur hús og eru tvær stærðir í boði, tvö húsanna eru um 170 fm og tvö þeirra eru um 100 fm. Byggingaraðili húsanna veitir allt að 80% seljendalán til 25 ára með sambærilegum kjörum og lánastofnanir. 

Nánari lýsing eigna:

Stærri húsin er alls um 170 fm og skiptast í kaffistofu, eldhús, baðherbergi, ásamt hesthúsi með sjö eins hesta stíum.
Minni húsin eru alls um 100 fm og skiptast í kaffistofu, eldhús, baðherbergi, ásamt hesthúsi með þremur tveggja hesta stíum
Allar efri hæðirnar eru með stórum þaksvölum með möguleika á heitum potti. 
Verðið er 59,9 mkr. fyrir minni húsin en 98,5 mkr. fyrir stærri húsin.

Hér eru frábærar eignir á ferðinni fyrir hestafólk þar sem hægt verður að stunda áhugamálið og njóta glæsilegrar kaffistofu og vistarveru með gestum. Almannadalur er við Hólmsheiði og eru reiðleiðir um alla heiðina. Stutt er í náttúruna og útivist en verslanir og þjónustu er hægt að sækja í Norðlingaholt í um 5 mínútna akstursfjarlægð. 

Kaffistofum og hesthúsum verður skilað fullbúnum, en án gólfefna. Traustur og reyndur byggingaraðili er í verkinu. 

Nánari upplýsingar veita Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730, tölvupóstur katarzyna@trausti.is eða Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, tölvupóstur hallgrimur@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Almannadalur 9

161 Reykjavík
Tilboð
Hesthús
TegundHesthúsStærð0 m²FasteignanúmerF23151785
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 4 myndir

Upp ↑