fasteignasölur.is
Hólalax
1 af 34

Um eignina

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir eignirnar Hólar Hólalax, 551 Sauðárkrókur, nánar tiltekið eign með landnúmer 146451, fastanúmer 214-2805 ásamt öllu því sem eignunum fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignirnar eru skráðar sem hér segir hjá FMR: Eign 214-2805, birt heildarstærð  er 2276.5 fm. Eignirnar eru á leigulóð innarlega í Hjaltadal.

Háskólinn á Hólum hefur nýtt eignirnar undir rannsóknarvinnu nemenda og starfsmanna. Þar var áður starfsemi fyrir bleikjueldi.

Samkvæmt skrám HMS er um eftirfarandi mannvirki að ræða:

Fiskeldisstöð, byggð 1980, birt stærð 1.255 fm.
Kerskáli, byggður 1986, birt stærð 466 fm.
Eldisker 13 talsins, byggð á árunum 2010-2011, birt stærð 16,4 fm- 113,9 fm.
Vatnsmiðlanir 3 talsins, byggð 2011, birt stærð 1,1 fm hver.

Fiskeldisstöðin er steinsteypt og skiptist í vinnslusal, klaksal, endurnýjaða forstofu, skrifstofu, kaffistofu með nýjum innréttingum og baðherbergi með nýlegum flísum. Einnig er lagnarými, verkstæði, geymsla með millilofti og 2 herbergi. Í vinnslusal eru 13 eldiskör,13 rúmmetra og 42ja rúmmetra. 10 eldiskör eru undir langhlið hússins og 5 innanhúss og 5 utanhúss. Þau kör eru steypt  og 25 rúmmetra.

Þak hússins var endurnýjað fyrir nokkrum árum. 

Kerskálinn er óeinangrað stálgridarhús og rúmar 5 eldiskör sem eru 120 rúmmetrar hvert. Kerin eru hluti af burðarvirki hússins. Gólf er malarborið en lagnir, aðveita og lagnir að innan voru endurnýjaðar 2008-2010. Við skálann eru 8 eldiskör sem eru um 20 rúmmetrar hvert og eitt 80 rúmmetra.

Austan við fiskeldisstöðina eru 3 eldiskör sem eru 320 rúmmetrar hver.

Húsin hafa ekki verið í notkun í talsverðan tíma og farin að láta á sjá vegna notkunarleysis og t.d. hafa einhverjar lagnir frostsprungið í kerskála.

Eignirnar seljast í því ástandi sem þær eru við skoðun og afhendast við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is

Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.





 

Hólalax

551 Sauðárkrókur (dreifbýli)
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1980TegundAtvinnuhúsnæðiStærð2276,5 m²FasteignanúmerF21428058Fasteignamat120.850.000 kr.Brunabótamat554.450.000 kr.
Skráð hjá
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir
HeimilisfangBorgartún 26, 105Sími590-9713

Allar 34 myndir

Upp ↑