Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega vandað og glæsilegt einbýlishús á sjávarlóð á Arnarnesi. Stórfenglegt útsýni út á voginn og í átt að Snæfellsjökli. Stórar stofur með gólfsíðum gluggum, stórum og fallegum arni, borðstofu og palli. Eldhús er afar veglegt og vel tækjum búið og skartar glæsilegri hönnunarinnréttingu frá Clive Christian í London. Útgengi er bæði úr stofum og eldhúsi út í garð. Rými sem henta einkar vel til veisluhalda. Á neðstu hæð hússins er m.a. stór stofa og fullbúin líkamsrækt. Einnig er þar að finna einstaklega glæsilegt og rúmgott SPA með stórri saunu, heitum potti, baraðstöðu með ísskáp, snyrtingu, tvöfaldri sturtu, afslöppunarrýmum og sólskála. Nýuppgerð, fullbúin íbúð með góflhita og sérinngangi er í kjallara. Innangengt er í rúmgóðan, tvöfaldan bílskúr með miklu skápaplássi. Lóðin sem er 1433 fm er fullfrágengin með pöllum, hlöðnum veggjum, fallegum gróðri, fiskatjörn og áhaldahúsi í bakgarði. Húsið stendur við afar falleg gata á Arnarnesi og ríkir þar mikil veðursæl. Einstök eign sem vert er að skoða.Allar nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Einbýlishús á sjávarlóð - Arnarnes
210 Garðabær
Tilboð
Einbýlishús7 svefn · 5 bað
TegundEinbýlishúsStærð785 m²Herbergi10FasteignanúmerF9998888
