fasteignasölur.is
Hraunbrekkur 28
1 af 252

Um eignina

Miklaborg og Böddi kynna:

Hraunbrekkur 28 – Húsafelli Einstaklega fallegt og sérhannað 128,8 fm heilsárshús á 1.000 fm eignarlóð á einum fallegasta og friðsælasta stað í Húsafellsskógi.

Eignin er einstaklega vel staðsett inni í grónu kjarri sem skapar mikið næði og rólegt umhverfi allt árið um kring. Húsið er hannað í glæsilegum nútíma/fönkisstíl með flötu þaki, stórum gólfsíðum gluggum og fallegri tengingu milli innirýmis og náttúrunnar fyrir utan.

Nánari uppl:

Böddi Lgf S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is



Nánari lýsing:

Aðalbyggingin skiptist í opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna fallega saman. Stór eldhúseyja er miðpunktur rýmisins og fallegur hangandi arinn gefur húsinu einstakan karakter og hlýlegt yfirbragð. Stórar rennihurðir opnast út á rúmgóða timburverönd sem umlykur húsið.

Í aðalbyggingu eru þrjú góð svefnherbergi ásamt baðherbergi með sturtu og útgengt út á verönd þar sem heitur pottur, kaldur pottur og tunnusauna skapa einstaka spa stemningu.

Í aukabyggingu er svefnherbergi, þvottahús og geymsla, öll rými með sérinngangi — hentugt fyrir gesti eða sem sveigjanlegt aukarými.

Stór timburverönd umlykur húsið með yfirbyggðu svæði, heitum potti, köldum potti og tunnusauna sem gerir eignina sérstaklega aðlaðandi til heilsársnotkunar

Helstu kostir:

Eignarlóð – engin lóðarleiga

Gróin og skjólgóð lóð með miklu næði

Heitur pottur, kaldur pottur og sauna

Stór timburverönd með yfirbyggðu svæði

Aukabygging með sérinngangi

Heilsárshús með hitaveitu og gólfhita

Gólfhitakerfi endurnýjað 2026

Einstök staðsetning í Húsafellsskógi

Byggt 2008

Húsafell er eitt eftirsóttasta frístundasvæði landsins með góðri þjónustu allt árið um kring, golfvelli, sundlaug, hóteli, veitingastað og fjölmörgum náttúruperlum í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir: Böddi lgf. S: 821-6300 boddi@miklaborg.is

 

 







Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
89.900.000 kr.698 þ./m²
+40,5% á 5 árum
26. mars 2021Fyrsta sala
64.000.000 kr.497 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hraunbrekkur 28

320 Reykholt (Borgarfirði)
89.900.000 kr.698 þ./m²
Sumarhús4 svefn
Byggingarár2008TegundSumarhúsStærð128,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2306413Fasteignamat71.800.000 kr.Brunabótamat77.350.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 252 myndir

Upp ↑