fasteignasölur.is
Vesturbakki 10
1 af 36

Um eignina

Fasteignaland fasteignasala kynnir til sölu:

Steypt og vandað atvinnuhúsnæði á frábærum stað í Þorlákshöfn. Húsnæðið samanstendur af 33 stökum einingum að grunnfleti 41-69 fm auk möguleika á millilofti.  Öll rými skilast fullbúin með snyrtingu, hægt að koma fyrir sturtu og eldhúskrók. Gólfhiti í rýmum. Lóð skilast frágengin með malbikuðu bílaplani.  Afhending sumar 2026.


Húsnæðið hentar vel undir fjölbreytta starfsemi og þjónustu og er kjörið fyrir verktaka, sem geymsluhúsnæði eða dótakassi svo eitthvað sé nefnt. Á efri hæðum eru mjög flott rými með ótal möguleika varðandi nýtingu, þar eru fínir gluggar og hægt að setja upp gott milliloft.

Nánari lýsing - um er að ræða Vesturbakka 10 bil 112
Skráð stærð 68,9 fm að grunnfleti 
Rýmið skilast fullbúið.
Innkeyrsluhurð 2,5m
Rýmið skilast með snyrtingu og sturtu.
Öll rými með sér rafmagnsinntaki. 

Skipting eignarhluta:
11 iðnaðarbil (merkt 101-111) extra há innkeyrsluhurð (3,5m) með möguleika á stóru millilofti. 
11 iðnaðarbil (merkt 112-122) stærri rými en með milli lofthæð, innkeyrsluhurð 2,5m.
11 skrifstofur (merkt 201-211) eru á 2 hæð með ótal möguleika, hægt að setja upp milliloft.

Úr byggingarlýsingu:
Húsið er úr forsteyptum samlokueiningum frá BM Vallá, á steyptum sökkli. 
Þak er yleiningar og sperruþak á 2. hæð. Gluggar og hurðir eru Al/tré.
1. hæð verður máluð í hvítum lit, 2. hæð einangruð og klædd með álklæðningu. 
Gólfhiti í öllum rýmum á efri 2. hæð, gólf frágengin með niðurföllum og góðum vatnshalla. 

Þetta er vandað hús á góðum stað í Þorlákshöfn - áhugaverðar stærðir með mikla nýtingarmöguleika.

Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrrisson, lgf s 777-5209, 599-6705, hordur@fasteignaland.is
Fasteignaland fasteignasala, Skeifunni 2 , Reykjavík s 599-6700


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

Vesturbakki 10

815 Þorlákshöfn
29.900.000 kr.434 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð68,9 m²FasteignanúmerF2533393Fasteignamat1.500.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑