fasteignasölur.is
Katrínartún 2
1 af 12

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu 825 m² glæsileg skrifstofuhæð á 14. hæð við Höfðatorg/ Katrínartún 2. 

Eitt glæsilegasta skrifstofurými á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 14. hæð í Katrínartúni 2, nánar tiltekið Höfðatorgi. Gæðin í rýminu eru einstök og má þar horfa til lofthæðar, ljósmagns, útsýnis, hljóðvistar, aðgangsstýringar, loftgæða o.s.frv. 

Helstu kostir: Ein vandaðasta og fjölmennasta skrifstofubygging landsins. Frábær staðsetning í einu helsta viðskiptahverfi Reykjavíkur. Stórbrotið útsýni, óhindrað til sjávar og fjalla.
Stærð: 825 m2.
Skipulag: Rýmið er sambland af opnu vinnurými, lokuðum skrifstofum og fundarherbergjum. Góð kaffi- og eldhúsaðstaða er einnig til staðar. 
Aðstaða: Ein vandaðasta skrifstofubygging landsins sem býður upp á mikinn sýnileika og einstakt útsýni. Veitingaþjónusta er á jarðhæð þar sem boðið er upp á ferskt og fjölbreytt hádegishlaðborð alla virka daga.
Aðgengi: Gott aðgengi, innangengt er niður í bílakjallara með 1.300 bílastæðum, hleðslustöðvum, hjólageymslum og þvottastöð. Möguleiki er að takmarka aðgengi að rýminu með aðgangsstýringu í lyftu, fer allt eftir óskum og þörfum leigutaka. 
Umhverfi: Frábær staðsetning í einu helsta viðskiptahverfi Reykjavíkur þar sem fjöldi fólks starfar innan kjarna og í göngufjarlægð. Góðar samgöngur liggja að húsinu og öll þjónusta og veitingastaðir í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, s. 824 6703 olafur@jofur.is eða Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is
 


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Katrínartún 2

105 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð825 m²FasteignanúmerF600153
Skráð hjá
Jöfur atvinnuhúsnæði
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑