fasteignasölur.is
Túngata 12
1 af 44

Um eignina

Fallegt og vel staðsett einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, baðherbergjum á báðum hæðum, nýlegri innréttingu í eldhúsi, endurnýjuðu baðherbergi á efri hæð 2020 og sér íbúð í bílskúr þar sem allt var endurnýjað árið 2017.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með parket á gólfi og útgengt á timburverönd í garði. Í eldhúsi er falleg innrétting sem sett var upp 2017, þar er parket á gólfi og borðkrókur. Inn af eldhúsi er mjög rúmgott og endurnýjað þvottahús með flísum á gólfi. Má kannski segja að þarna sé bæði þvottahús og geymsla og einnig gott pláss fyrir bæði frysti og auka ísskáp. Útgengt er úr þvottahúsi. Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, bæði með parket á gólfi. 
Á efri hæð er rúmgott hol með upptekið loft og parket á gólfi. Baðherbergi efri hæðar var allt endurnýjað árið 2020, þar er baðkar og handklæðaofn. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi með parket á gólfi og úr öðru herberginu er útgengt á svalir. Góðar geymslur eru undir súð á efri hæð. Í garði er góður garðskúr/geymsla. 
Í bílskúr er glæsileg tveggja herbergja íbúð sem útbúin var árið 2017. Þar eru stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi og sér svefnherbergi þar inn af. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta. Mjög fín íbúð, tilbúin til útleigu. 

Túngata 12

710 Seyðisfjörður
59.900.000 kr.241 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 3 bað
Byggingarár1950TegundEinbýlishúsStærð248,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21688361Fasteignamat47.550.000 kr.Brunabótamat112.250.000 kr.
Skráð hjá
INNI fasteignasala
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑