fasteignasölur.is
Krókháls 6
1 af 17

Um eignina

Jón G. Sandholt kynnir til sölu/leigu Krókháls 6, 110 Reykjavík, samtals 1.053 m² á þriðju og efstu hæð, góð aðkoma inn í rýmið af bílaplani 3.hæðar, einnig hægt að ganga upp stigahús af jarðhæð.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is

Krókháls 6 - Skrifstofur og Atvinnuhúsnæði.
Eign: Krókháls 6, 3. hæð
Stærð: 1.053,2 m²
Tegund: Skrifstofur / atvinnuhúsnæði
Laust: Hluti í útleigu.
Eignarhluti: 0301, F:2510697
Engin virðisaukaskattskvöð

Lýsing eignar
Krókháls 6 er glæsilegt og fjölhæft atvinnurými með mikilli lofthæð, góðu útsýni og sveigjanlegri nýtingu.
Aðgengi er bæði frá stigahúsi Krókhálsmegin og beint inn af bílastæði þriðju hæðar Lynghálsmegin.

Rýmið skiptist í fjölmargar skrifstofur af mismunandi stærðum (10–32 m²), þrjú baðherbergi (þar af eitt með hjólastólaaðgengi) og sturtuaðstöðu.
Á hæðinni er sameiginlegt eldhús / matsalssvæði, tæplega 60 m², með stórum gluggum, góðu borðplássi og möguleika á að nýta sem fundaraðstöðu eða kaffistofu fyrir starfsfólk.
Á suðurhluta hæðarinnar er um 340 m² rými sem nýtist vel sem lager eða stúdíó(ekki í útleigu, rauðmerkt á teikningu), með aðkomu Lynghálsmegin.

Upplýsingar úr eignaskiptasamningi
Eignin tilheyrir í sameign hlutföllum í húsi, lóð og orku samkvæmt eftirfarandi:
  • Hlutfallstala í mats- og lóðarhluta: 26,09 %
  • Hlutfallstala í rekstri sameiginlegra lóða K6 og L5: 15,57 %
Samkvæmt lóðarleigusamningi nær lóðin að Krókhálsi 6 yfir 4.118 m² og er sameiginleg með lóð Lynghálsi 5.

Annað
Húsnæðið hentar einstaklega vel fyrir skrifstofur, þjónustu, skapandi starfsemi eða blandaða notkun.
Mikil lofthæð, stórir gluggar og sveigjanleg skipting gera rýmið fjölbreytt og bjart.
Hluti húsnæðisins er í útleigu í dag en losnar fljótlega.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Krókháls 6

110 Reykjavík
375.000.000 kr.356 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1987TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1053,2 m²Herbergi10FasteignanúmerF25106973Fasteignamat227.550.000 kr.Brunabótamat436.400.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑