fasteignasölur.is
Móstekkur 80
1 af 2

Um eignina

Fasteignasalan Heimaland kynnir Móstekkur 80, 800 Selfossi.

Um er að ræða vel skipulagða íbúð í nýju raðhúsi á Selfossi. 
Móstekkur 80 er skráð samtals 115,4 fm. Húsið er staðsett í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar og í göngufæri frá nýjasta gunnskóla bæjarins, Stekkjaskóla. 
Húsið er timburhús, klætt að utan með báruáli og sléttri ál klæðningu, gluggar eru ál/tré gluggar, vindskeiðar og undirklæðning úr málaðri furu. Gólfhiti er í húsinu, steyptur í plötu.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og þar er góður fataskápur.
Þvottahúsið er flísalagt, þar er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er snyrtileg innrétting með handlaug og gólfsturta.
Herbergin eru 3 og eru þau öll með harðparketi á gólfi, fataskápar eru í þeim öllum.
Stofa og eldhús eru í opnu parketlögðu rými, stór innrétting með eyju og innbyggðum tækjum er í eldhúsi. Í stofu er hurð út á baklóð. 

Húsið afhendist fullbúið, lóð þökulögð og mulningur í bílaplani. Steypt ruslatunnuskýli fylgir. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is



Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Heimaland ehf.
74.900.000 kr.649 þ./m²
+56,4% á 1 ári
29. október 2025Fyrsta sala
47.900.000 kr.415 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Móstekkur 80

800 Selfoss
74.900.000 kr.649 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundRað-/parhúsStærð115,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25381231Fasteignamat47.700.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Heimaland ehf.
HeimilisfangBrúarstræti 2, 2. hæð, 800 SelfossSími587-7707

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 2 myndir

Upp ↑