fasteignasölur.is
Víðibrekka 8
1 af 28

Um eignina

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Víðibrekku 8, Varmahlíð í Skagafirði, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.
Um er að ræða snyrtilegt og vel staðsett 58,9 fm sumarhús á einni hæð. Húsið er timburhús, upphaflega byggt árið 1976, en var flutt ásamt sólpalli á núverandi stað árið 2020.
Leigulóðin er 5931 fm.
Frábært útsýni er frá eigninni.


Húsið skiptist í tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, forstofu og þvottahús/geymslu.
Gengið er inn í forstofu. Við innganginn er útbygging þar sem þvottahús og geymsla eru. 
Tvö svefnherbergi eru í húsinu.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými. Úr stofu er útgengt út á sólpall.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa.
Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi þar sem er dúkur.
Heitur pottur er á sólpalli.
 
Þak var endurnýjað 2024.
Rafmagnstafla var endurnýjuð árið 2023.
Lagnagrind er frá árinu 2020.
Girðing og pottasvæði var endurnýjað 2019/2020.
Skipt var um gler í húsinu 2018.
Búið er að leggja ídráttarrör fyrir rafmagn að steinum á bílablani en eftir að draga rafmagn í – hugsað fyrir lýsingu á plani.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir, löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Víðibrekka 8

561 Varmahlíð
35.000.000 kr.594 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundSumarhúsStærð58,9 m²Herbergi3FasteignanúmerF25082941Fasteignamat32.050.000 kr.Brunabótamat34.250.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Sauðárkróks
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑