fasteignasölur.is
Bæjarsker 0
1 af 33

Um eignina

Fasteignasalan Borg kynnir fasteignina Bæjarsker N-Lyngsel í Sandgerði. Eign sem hentar einkar vel í útleigu eða Airbnb.

Einbýlishúsið sem stendur í útjaðri Sandgerðisbæjar á rólegum stað er skráð 169,2 fm að stærð en að sögn eigenda þá er það stærra, (nær 200 fm þar sem milligangur er ekki inni í skráðum fermetrafjölda). Húsið stendur á  4.200 fm leigulóð og um 300 fm sólpallur er í kringum húsið og stórt bílastæði.  Stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, íþróttamiðstöð og sundlaug. 10 mínútna akstur er á flugvöllinn og 40 mínútna akstur til Reykjavíkur.  Þegar núverandi eigendur keyptu húsið voru tvær íbúðir í húsinu en nú er búið að opna á milli þeirra. Auðvelt er að breyta því aftur í fyrra horf.

Nánari lýsing eignar:
Anddyrið er með harðparkett á gólfi og eldhúsi (anddyrið er óskráð).
Gangur: stór gangur sem tengir saman íbúðirnar tvær sem áður voru í húsinu. Harðparketi á gólfi, góðir skápar og hurð út á verönd.
Herbergi: Sex stór herbergi með harðparketi á gólfi, skápar í einu og hurð út á verönd úr einu.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi með flísum á gólfi, stór innrétting er í öðru og lítil í hinu. Bæði baðherbergin eru með sturtuklefa.
Þvottahús: Stórt þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með góðu geymsluplássi. Tengi fyrir þvottavél er inni í geymslurými í öðrum enda hússins.
Eldhús: Stórt eldhús með stórri innréttingu.
Stofa: Björt og stór stofa með harðparketi á gólfi.
Borðstofa: Björt borðstofa með harðparketi á gólfi, hurð er út á verönd sem er allt í kringum húsið.
Bílastæði: Stórt malbikað bílastæði sem rúmar yfir tíu bíla.

Hér er um að ræða mjög skemmtilega eign sem býður upp á mikla möguleika, t.d. sem lítið gistiheimili, útleigueiningar, Airbnb eða sem einbýlishús á rólegum stað í útjaðri bæjarins. Einnig væri hægt að leigja út aðra einingu hússins og búa í hinni. Gott aðgengi fyrir fatlaða og engir þröskuldar milli herbergja. Hægt væri að færa húsið í fyrra horf þegar öðru megin var íbúð með 1-2 svefnherbergjum og hinum megin íbúð með 4-5 svefnherbergjum. Gott útsýni er í dag frá húsinu, fallegt sólarlag og norðurljós. 

Nánari upplýsingar veita: 
Ingimar Ingimarsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.
Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því skorað á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Bæjarsker 0

246 Sandgerði
73.900.000 kr.437 þ./m²
Fjölbýlishús6 svefn · 2 bað
Byggingarár1991TegundFjölbýlishúsStærð169,2 m²Herbergi6InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF20944695Fasteignamat78.650.000 kr.Brunabótamat87.850.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑