fasteignasölur.is
Tunguskógur 39
1 af 16

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Tunguskógur 39 Ísafirði - Hóll - Stór og fallegur sumarbústaður, nefndur í Tunguskógi Ísafirði, góð staðsetning og stór lóð sem gefur frekari möguleika á uppbyggingu. Tilboð óskast - Í bústaðnum er eldhús og stofa, tvö herbergi, baðherbergi, þvottaaðstaða, á rislofti er góð svefnaðstaða.
Tungudalur er helsta útivistarsvæði Ísfirðinga, dalurinn er talinn vera miðstöð útivistar og ævintýra, en þar er að finna golfvöll, strandblakvöll, skíðasvæði, margar gönguleiðir og frábært tjaldsvæði.


Nánari lýsing:
Tröppur niður að húsi, aðalinngangur að framanverðu, þar er komið inn í forstofugang. 
Við inngang er afstúkuð þvotta og geymsluaðstaða, tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa í opnu  og björtu rými, mjög góð lofthæð. Eldhúsinnrétting er til bráðabirgða en býður upp á gott skápapláss, vaskur, helluborð og ofn. Viðarkamína til upphitunar í stofu. 
Tvö svefnherbergi á hæðinni, minna herbergi með tveimur kojum og stærra hjónaherbergi með lausum fataskáp.
Baðherbergi með góðri sturtu og innréttingu.
Risloft/svefnloft, stigi úr gangi upp á risloft sem er skráð 32 m² að stærð, mjög gott svefnpláss, þrír gluggar á rishæðinni. 
Útgengt út af gangi út á stóran sólpall sunnanmegin. 
Stór garður með leiktækjum fyrir börn, hægt að setja upp heitan pott í garði/sólpalli. 

Á lóðinni er 6,2 m² geymsluskúr á steyptum grunni, tilbúinn fyrir salerni.
Bústaðurinn sjálfur er skráður 72,1 m², samtals skráð stærð er 78,4 m².

Hægt er að keyra niður af vegi upp að bústaðnum og nýta bakgarð sem bílastæði.
Lóðin er  skráð 1398 m² leigulóð.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Tunguskógur 39

400 Ísafjörður
Tilboð
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2016TegundSumarhúsStærð78,3 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22681301Fasteignamat20.000.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Vestfjarða
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑