fasteignasölur.is
Fannborgartangi 4
1 af 15

Um eignina

LÓB fasteignir kynna eignina Fannborgartangi 4, 846 Flúðum, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 252-8387(eins og er þá er sama fastanúmer á F2 og F4) ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Um er að ræða parhús í byggingu sem er í heildina með birta stærð 164.5m2 sem skiptist í íbúðarrými 126,2m2 og bílskúr 38,3m2. Um er að ræða hluta af parhúsinu Fannborgartangi 2-4 og möguleiki á að kaupa allt húsið í heild sinni það er Fannborgartanga 2 einnig. Teikning eignarinnar gerir ráð fyrir 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stofu, eldhús og þvottahús. Innangengt í bílskúr.

Hægt er að kaupa eignina fokhelda, rúmlega fokheld og einnig fullbúna. Eignin er staðsett nyrst á Flúðum í nýju hverfi í uppbyggingu.

Ásett verð miðað við afhendingu:
Fokheld kr. 59.000.000,-  eða um það bil 359.000 kr./m2  (skilalýsing að neðan) 
Rúmlega Fokheld: 62.000.000,-  eða um það bil 376.000,- kr./m2 (Viðbótarskilalýsing neðst) - myndir að innan úr sambærilegri eign á sama stigi.

Byggingarstig 4 - Fullbúin með innréttingum, tækjum og gólfefni kr. 84.900.000 eða um það bil 516.000 kr./m2. (skilalýsing fæst hjá fasteignasala)


Fokhelt (skilalýsing):
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd. Þ.e. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa. Inntaksgjöld rafmagns,kalda vatns og hitaveitu eru ógreidd. Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu.
Teikningar:  
Teikningar eru: Byggingarnefndarteikningar, glugga- og hurðateikningar, burðarvirkisteikningar þ.e. undirstöður, veggir og þak, lagnateikningar þ.e. frárennsli, neysluvatns- og hitalagnir,  ásamt rafmagnsteikningum.
Gröftur og fylling:  
Grafið er niður á fast undirlag og fyllt í með grófri möl sem síðan er þjöppuð og þjöppumæld.
Sökklar:
Sökklar eru að hámarki 1200mm háir. Járnabinding er 2xK12  efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og K10 í tengijárn við plötu. Einangrun á innanverða sökklulveggi er 16kg/75mm plasteinangrun. Steypa er af gerðini S-250.
Botnplata:
Járnabinding er einföld 6mm járnamottugrind. Einangrun undir plötu er 16 kg/100mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-250. Botnplata er slödduð. Ath það má reikna með að það þurfi að steinslípa og flota.                                   
Lagnir:
Skolp-og rengnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.
Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu en þó ekki tengdar við tengikistur og nema. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn  undir botnplötu en ótengt.
Útveggir
145x45 mm styrkleikaflokkað timbur. 9 mm krossviður til stífingar. 28x60 mm loftunargrind.
Klæðning:
Liggjandi báruál (litur: Jökull ral 7035) og standandi hvít timburklæðning.
Þak:
Kraftsperruþak með 14° halla. Klæðning: Borð, þakpappi og svört bárujárnsklæðning.
Þakkantur:
Vindskeiðar úr svörtu áli með álrennum (innfeldar). Undirklæðning: Svört 20x95 mm vatnsklæðning með 20 mm loftbili. Festing: Ryðfrí hefting.
Hurðir og gluggar:
Útihurðir og gluggar eru ál-tré .ATH að það gæti þurft að mála eina umferð á glugga og hurðir að innan.
Bílsskúrshurð er hefðbundinn flekahurð frá Vögnum og þjónustu.
Bílskúr:
Bílsskúr afhendist á því stigi að búið er að klæða 2 falt gips á brunavegg bílsskúrsmeginn og 1 földu lagi íbúðarmegin. Loft og útveggir með 2 földu gipslagi og hefðbundnum rafmagnsgrindar og rakasperrufrágang. Ath ómálað. Gert er ráð fyrir að allt rafmagn í bílsskúr sé utanáliggjandi.
Lóðarfrágangur:
Lóð er grójöfnuð en búið að jarvegsskipta í bílaplani. Innkeyrsla skilast með grófjafnaðri grús.
Afhendist með 3 hólfa ruslatunnuskýli.

Rúmlega fokheld - ásett verð kr. 62 milljónir:
Ef eignin er keypt rúmlega fokheld þá skilast hún samkvæmt ofangreindri skilalýsingu með eftirfarandi viðbótum:
  • Húsið einangrað
  • Rakasperru komið fyrir
  • Rafmagnsgrind
  • Inntök og bráðabirgðatenging á hitaveitu
  • Rafmagnstafla komin og tengd.
  • Myndir að innan sýnir sambærilega eign á sama stigi
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Kristófer Ara, löggiltur fasteignasali og lögfræðingur í síma 695-6134 eða kristo@olafur.is, skrifstofusími: 416-2223

Skoðunarskylda kaupanda og upplýsingaskylda seljanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Vakin er athygli á því að í lýsingu á söluyfirliti kemur fram herbergjafjöldi eignarinnar. Sé eignin keypt fokheld eða rúmlega fokheld þá skilast eignin í ástandi miðað við skilalýsingu og auglýstur herbergjafjöldi er  einungis skv. teikningu eignarinnar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 55.000 auk vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Allar nánari upplýsingar hjá Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar s. 416-2220 – Eyravegi 15, 800 Selfoss

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Fannborgartangi 4

846 Flúðir
59.000.000 kr.359 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð164,5 m²Herbergi4InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF25283872Fasteignamat67.000.000 kr.
Skráð hjá
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar
HeimilisfangEyrarvegi 15b, 800 SelfossSími416-2220

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑