fasteignasölur.is
Foldahraun 37
1 af 50

Um eignina

Foldahraun 37G, Vestmannaeyjum

Til sölu er rúmgott og bjart raðhús á tveimur hæðum við Foldahraun 37G í Vestmannaeyjum ásamt 27,6 fm bílskúr. Eignin er samtals 157,5 fm, þar af 128,6 fm íbúðarrými og 27,6 fm bílskúr.
Um er að ræða fjölskylduvæna eign á vinsælum stað við Foldahraun þar sem stutt er í Herjólfsdal, golfvöll, íþróttasvæði, Hamarskóla og leiksvæði. Frá vestursvölum er fallegt útsýni inn í Herjólfsdal og yfir Smáeyjar. Eignin býður upp á fjögur herbergi, bjart alrými og góða nýtingu rýmis.

Skipulag eignarinnar
 
Neðri hæð
●     Forstofa/anddyri: Flísalagt og snyrtilegt.
●     Þvottahús: Staðsett strax við forstofu, flísalagt, með salerni, vaski og góðu hilluplássi.
●     Hol: Parketlagt, með geymslu undir stiganum sem nýtir plássið til fulls.
●     Svefnherbergi (1): Rúmgott herbergi með parketi og útgengi á steyptan pall í vestur.

Efri hæð
●     Gengið er upp teppalagðan stiga upp á efri hæðina þar sem hátt er til lofts og loftagluggar hleypa inn mikilli dagsbirtu.
●     Stofa og borðstofa: Bjart alrými með parketi. Úr stofunni er gengið út á góðar svalir í vestur þar sem hægt er að njóta einstaks útsýnis yfir Smáeyjar og inn í Herjólfsdal.
●     Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting og flísar á gólfi.
●     Svefnherbergi (2, 3 og 4): Þrjú parketlögð herbergi á hæðinni. Hjónaherbergið er með fataskápum og eitt herbergjanna er með rennihurð.
●     Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og á veggjum að hluta, búið hornbaðkari með sturtu og handklæðaofni.

Bílskúr og geymslur
●     Bílskúr (27,6 fm): Rafmagn er innlagt, sjálfvirkur opnari á hurð og sér geymsla innst í skúrnum. Bílskúrinn er annar vestan frá í röðinni.
●     Geymslur: Sér útigeymsla og sorpgeymsla fylgja eigninni, auk þess sem pláss er í sameiginlegri geymslu í kjallara.

Húsfélag mun klára að skipta um útihurð, múrviðgera og mála eignina að utan og laga sorpgeymslu , og er til fjármagn í hússjóði til þess.
 
Rúmgóð og björt fjölskyldueign með góðu skipulagi, fjórum herbergjum, bílskúr og fallegu útsýni á góðum stað í Vestmannaeyjum.

Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Helga Bragasyni, lögmanni og löggiltum fasteignasala, í síma 893 1068 eða á hb@eyjar.is.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Vestmannaeyja
68.000.000 kr.432 þ./m²
+19,5% á 2 árum
9. júlí 2024Þinglýstur kaupsamningur
56.900.000 kr.361 þ./m²
+67,4% á 4 árum
12. júní 2020Þinglýstur kaupsamningur
34.000.000 kr.216 þ./m²
+13,3% á 2 árum
21. september 2018Þinglýstur kaupsamningur
30.000.000 kr.190 þ./m²
+23,7% á 4 árum
8. október 2014Þinglýstur kaupsamningur
24.250.000 kr.154 þ./m²
+195,7% á 8 árum
2. júní 2006Fyrsta sala
8.200.000 kr.52 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Foldahraun 37

900 Vestmannaeyjar
68.000.000 kr.432 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1975TegundRað-/parhúsStærð157,5 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21834101Fasteignamat52.850.000 kr.Brunabótamat73.360.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Vestmannaeyja
HeimilisfangKirkjuvegur 23, 900Sími488-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑