fasteignasölur.is
Gistiheimili
1 af 13

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **  

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Gistiheimili á frábærum stað við Laugaveg 28A í hjarta Reykjavíkur. Eignin er skráð 137,0 m2 en þar af kjallari 50,4 m2, gistihús 53,8 m2 og ris 32,8. Eignin er fullbúin sem gistiheimili með öllum tilskyldum leyfum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjárfesta eða aðila í ferðaþjónustu sem vilja eignast tekjuvæna eign með mikla framtíðarmöguleika. Reksturinn er einfaldur með hóflegum rekstarkostnaði. Flest fer fram í gegnum sjálfsafgreiðslu (self-service), sem gerir mjög þægilegt að hafa umsjón með eigninni. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

 
Nánari lýsing:
Húsið er á þremur hæðum með alls 7 herbergjum og býður upp á notalega og vel skipulagða gistiaðstöðu.
Kjallari: Eldhúsaðstaða, tvö svefnherbergi og rúmgott baðherbergi.
Fyrsta hæð: Forstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, sameiginlegt baðherbergi og geymsla.
Ris: Setustofa, tvö svefnherbergi og útgengi á svalir.
Samkvæmt upplýsingur frá eiganda er ástand eignarinnar gott en hún var talsvert endurnýjuð árið 1999, þ.m.t. gler, gluggar, járn á húsi og þaki, þakrennur, niðurföll, útihurðir og allar lagnir. Vaskar eru í öllum herbergjum á 1. hæð og á rishæð. Eignin stendur á 177,0 fermetra eignarlóð og er aðkoma að húsinu bæði frá Laugavegi og frá Grettisgötu. 


Sjá eignina á Booking

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Gistiheimili

101 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði7 svefn · 2 bað
Byggingarár1905TegundAtvinnuhúsnæðiStærð137 m²Herbergi8InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20048162Fasteignamat107.450.000 kr.Brunabótamat73.000.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑