fasteignasölur.is
Garðarsbraut 39
1 af 24

Um eignina

Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 39, 640 Húsavík

Um er að ræða mikið endurnýjaða fimm herbergja íbúð á annarri hæð í steinsteyptu húsi byggt byggt árið 1964. Samtals stærð eignarinnar er 139,6 M2 og er íbúðin með fjórum svefnherbergjum, forstofu/gang, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi með salerni og stofu. Árið 2019 var íbúðin öll tekin í gegn á smekklegan hátt. Gengið er í húsið á jarðhæð og þá komið inn í sameign sem er deilt með einni annarri íbúð og þar stigi upp á aðra hæð þar sem er inngangur í eignina.

Nánari Lýsing: 
Forstofa:
 komið er inn í parketlagða forstofu sem er í opnu rými með eldhúsinu og gang. 
Eldhús: Innréttingin er rúmgóð og með ljósum við og hvítri bekkplötu. Við endan á innréttingu er borðkrókur. Inn af eldhúsinu er þvottahús. 
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum, "walk in" sturta, vegghengd wc, handklæðaofn og viðarlituð vaskainnrétting. 
Fjögur svefnherbergi: Öll svefnherbergin eru rúmgóð. Tvö svefnherbergi staðsett á ganginum, eitt svefnherbergi inn af stofunni sem er með stórum glugga og stórum fataskáp og svo er eitt svefnherbergi staðsett við sameignargang fyrir framan inngang eignarinnar 
Þvottahús: er með skúffuinnréttingu sem er í vinnuhæð og gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara, wc er í þvottahúsinu sem er vegghengd. Í þvottahúsinu er einnig salerni. 

Annað: 
Árið 2019 var íbúðin endurnýjuð að nánast öllu leyti og var þá m.a. farið í;
- Lagt nýtt rafmagn.
- Lagnir endurnýjaðar og gólfhiti lagður í alla íbúðina.
- Eldhúsinnrétting og allt í eldhúsi hefur verið endurnýjað.
- Skipt um alla glugga sem eru nú úr plasti með skyggðu gleri. 
- Baðherbergi og þvottahús endurnýjað að öllu leyti. Þvottahús var áður kalt búr/geymsla. 
- Nýtt gólfefni sett á alla eignina. 
- Nýjar hurðar settar allsstaðar og eru hurðarnar með felliþröskuld.
- Nýtt teppi var sett á sameiginlegan inngang árið 2019.
- Settur forhitari á vatn í eldhúsinu.
- Árið 2024 var þakjárn endurnýjað .
´- Skipt hefur verið um alla glugga í eigninni.
- Sjá má í tveimur svefnherbergjum að það hefur lekið inn að utan verðu og er kaupendum bent á að kynna sér það. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lögeign
47.000.000 kr.337 þ./m²
+20,5% á 4 árum
27. maí 2022Fyrsta sala
39.000.000 kr.279 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Garðarsbraut 39

640 Húsavík
47.000.000 kr.337 þ./m²
Hæð4 svefn · 2 bað
Byggingarár1964TegundHæðStærð139,6 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21526041Fasteignamat42.400.000 kr.Brunabótamat56.100.000 kr.
Skráð hjá
Lögeign
HeimilisfangGarðarsbraut 26, 640Sími865-7430

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑