Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Glæsileg 3 svefnherbergja sérhæð með þaksvölum
Glæsilegar hágæða íbúðir staðsettar í Pilar de la Horadada, um 40 mínútur suður af Alicante. Eignin sem um ræðir er 87,1 m2 að stærð með 3 rúmgóðum svefnherbergjum með innbyggðum skápum og 2 baðherbergjum með hita í gólfi, einnig fylgja hágæða heimilistæki í eldhúsi, þvottavél í þvottahúsi og einstaklega stórar þaksvalir með pergólu, sumareldhúsi og frábæru útsýni.
Þessi sérhæð er í nýjum huggulegum íbúðarkjarna með sameiginlegri sundlaug og hjólageymslu. Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslun, apótek, veitingastaði í miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/pilar-de-la-horadada/glaesileg-3-svefnherbergja-serhae-me-aksvolum-337.html
REF: B310
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Glæsileg 3 svefnherbergja sérhæð með þaksvölum
Allar 26 myndir
Upp ↑
























