fasteignasölur.is
Skúlagata 32-34
1 af 23

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir fallega 3ja herbergja íbúð í góðu lyftufjölbýli við Skúlagötu 32-24, 101 Reykjavík. Íbúðin er á 2.hæð og er með útsýni til sjávar. Aukin lofthæð í allri íbúðinni. Sameiginleg bílstæði sem er lokað með símahliði.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 81 fm og þar af geymsla 7,1 fm. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og mannlíf.

Nánari um eignina:
Forstofa: er í opnu rými með stofu/borðstofu og eldhúsi. Flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: björt með útsýni til sjávar og að Esjunni. Parket á gólfi
Eldhús: Nýleg eldhúsinnrétting með bakaraofn, innbyggð uppþvottavé og stæði fyrir ísskáp. Flísar á gólfi
Hjónaherbergi: gengið inn frá stofu. Parket á gólfi. Utengt út á flottar svalir með sjávarútsýni.
Barnaherbergi: gengið inn frá stofu. Parket á gólfi.
Baðherbergi: með fallegum flísum, stórt baðkar, handklæðaofni, upphengdri innréttingu og upphengdu salerni
Geymsla: er 7,1 fm. og staðsett á jarðhæð
Þvottaherbergi: inn af eldhúsi, með innréttingu. Flísar á gólfi
Bílastæði: eru á framlóð hússins og einnig eru bílastæði fyrir húsið á malbikuðu plani á baklóð hússins þaðan sem einnig er innangengt í stigahús/lyftuhús. Slá er fyrir innkeyrslu á baklóð þannig að þau bílastæði eru eingöngu nýtt af íbúum hússins.
Sameign er mjög snyrtileg með hjóla- og vagnageymslu.

Húsið að utan: allt klætt með áli með innbrenndum hvítum lit. Norður og suðurhliðar efstu hæðar eru klæddar með harðviði

Nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is
Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.900.000 kr.863 þ./m²
+56,4% á 6 árum
11. desember 2020Þinglýstur kaupsamningur
44.700.000 kr.552 þ./m²
+12,5% á 13 árum
31. júlí 2007Fyrsta sala
39.739.000 kr.490 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skúlagata 32-34

101 Reykjavík
69.900.000 kr.863 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1959TegundFjölbýlishúsStærð81 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22416561Fasteignamat69.700.000 kr.Brunabótamat48.150.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑