fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia
1 af 26

Um eignina

Spánarheimili kynnir: "SÍÐASTU EIGNIRNAR" Við kynnum til sölu síðustu íbúðirnar í þessum íbúðarkjarna í Santa Rosalía Lake & Life Resort   Aðeins eru tvær íbúðir eftir í þessum íbúðarkjarna  Kjarninn samanstendur af 4 fjölbýlishúsum með 60 íbúðum og sameiginlegri sundlaug við miðju EIN EIGN MEР- ALLT INNIFALIÐ: Þetta er íbúð á jarhæð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Eldhús og stofa eru í opnu rými og frá stofunni er útgengt út á verönd Eldhúsið kemur fullbúið með ofni, örbylgjuofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og eldhúsháf. Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara Verð 399.000€ og í þessu verði fylgir loftkæling, einkasundlaug, húsgögn, bílastæði og geymsla. Tilbúið til afhendingar  EIN EIGN MEÐ EINKAÞAKSVÖLUM - Þessi eign er með sama skipulagi, 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi nema hún er á efstu hæð og er með einkaþaksvölum  Með þessari eign fylgir loftkæling  Verð 388.900€ og í þessu verði fylgir loftkæling Tilbúið til afhendingar Nánar um svæðið Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér. Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s. körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2310 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170386/the-last-apartments-in-this-residential-complex-in-santa-rosalia/

Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia

1053 Spánn - Costa Blanca
58.500.000 kr.848 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð69 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 26 myndir

Upp ↑