fasteignasölur.is
Vesturtangi 7-11
1 af 55

Um eignina

Vesturtangi 7 - 11 Siglufirði / Fjallabyggð - Fjölnota atvinnuhúsnæði á góðum stað

Til sölu eða leigu nýlegt og vandað atvinnuhúsnæði með fjölbreytta nýtingarmöguleika. Húsið er samtals 693,2 fm að stærð á tveimur hæðum og hentar fyrir ýmiskonar atvinnustarfsemi. Það hefur m.a. verið nýtt sem fiskvinnsla en býður einnig upp á sveigjanlega notkun, t.d. fyrir verkstæði, geymslur, lager, framleiðslu eða þjónustufyrirtæki.

Eignin er staðsett á góðum stað á Siglufirði, í nálægð við höfnina, og stendur á 1.648 fm iðnaðar- og athafnalóð með góðu aðgengi og innkeyrslu.

Einnig er mögulegt að skipta húsinu upp í minni einingar, sem opnar á fjölbreytta nýtingu og útleigumöguleika.

Skipulag og aðstað:
Neðri hæð
  • Móttaka / inntaksrými
  • Vinnslusalir sem áður voru nýttir fyrir fiskvinnslu
  • Kæligeymslur
  • Þvottaherbergi og sturtuaðstaða
  • Starfsmannaaðstaða og snyrtingar
  • Lyftarageymsla
Efri hæð
  • Skrifstofa með parketi á gólfi
  • Eldhús með innréttingu
  • Baðherbergi með upphengdu salerni og snyrtilegri innréttingu
  • Geymslurými sem er að hluta í útleigu
Annað:
  • Steypt og malbikað plan
  • Góð aðkoma og stórar innkeyrsluhurðir
  • Mikil lofthæð í vinnslurýmum sem eykur sveigjanleika í notkun
Allar nánari upplýsingar veitir
Bjarki Sigþórsson sölufulltrúi
Gsm: 8962798
bjarki@hofdi.is

 

Vesturtangi 7-11

580 Siglufjörður
129.900.000 kr.187 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2019TegundAtvinnuhúsnæðiStærð693,2 m²Herbergi1InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23602469Fasteignamat55.800.000 kr.Brunabótamat214.000.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 55 myndir

Upp ↑