Um eignina
Nánari lýsing:
Gengið er inn af snyrtilegum nýlegum viðarpalli inn í eignina. Forstofa með flísum á gólfi og þaðan inn í hol með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi
Eldhús með ágætri eldri innréttingu og tækjum. Flísar á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu, salerni, handklæðaofni og hvítri innréttingu.
Svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskáp.
Innaf gangi er sameign sem skiptist í geymslur og þvottahús sem er því sem næst upprunalegt. Lítil sérgeymsla fylgir eigninni.
Annað:
Eignin hefur hlotið gott almennt viðhald í gegnum tíðina og hefur veirð gert eftirfarandi skv.seljanda:
Skipt var um glugga á vestur og suðurhlið á eigninni 2019. Austurhlið 2012.
Húsið klætt að utan og þak endurnýjað fyrir ca. 8-10 árum
Ofnar, ofnalagnir og neysluvatnslagnir nýlega endurnýjað.
Ný rafmagnstafla.
Rafmagn endurnýjað í eldhúsi og annað rafmagn endurnýjað að hluta
Örstutt er í alla þjónustu svo sem skóla, íþróttamiðstöð, verslun og Hólmgarðinn fagra. Afbragðs útsýni er frá eigninni til fjalla m.a.
Hér er á ferð vel skipulögð eign á besta stað sem býður upp á ýmsa möguleika.
Frábær tækifæri sem fyrsta eign eða fyrir þá sem vilja eignast afdrep í Hólminum fagra.
Hafðu samband við Bjössa og bókaðu skoðun því sjón er sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Höfðagata 29
Staðsetning
Allar 26 myndir
Upp ↑
























