fasteignasölur.is
Orkureiturinn D1 310
1 af 13

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.

Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásvegur 2, íbúð 310 er fjögurra herbergja 127,8 fm með sérmerktu stæði B018. Íbúðin er á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og er á 3. hæðinni. Geymslan er 11,5 fm. Svalir til austurs. 
Innréttingaþema er Safír Harmonía (4). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Afhending íbúðanna: Afhending verður í júní/júlí

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: dagrun@betristofan.is
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Orkureiturinn D1 310

108 Reykjavík
138.900.000 kr.1.087 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð127,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25362733Fasteignamat94.000.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑