fasteignasölur.is
Kvisthagi 10
Nýtt
1 af 226

Um eignina

Miklaborg kynnir:

Björt og rúmgóð efri sérhæð auk riss í einni vinsælustu götu Vesturbæjar. Eignin hefur verið þónokkuð mikið endurnýjuð að innan á síðustu árum. Fimm svefnherbergi.


Allar nánari upplýsingar veita Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 23074 eða olafur@miklaborg.is og Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING: Gengið inn um sérinngang upp steinsteyptan stiga á stigapall sem skiptir hæðinni og risinu.

Neðri hæð: Gengið inn af stigapalli í hol sem leiðir þig í allar vistarverur íbúðarinnar. Eldhús, borðstofa og stofa eru í einu samliggjandi rými með útgengt á svalir í suður. Eldhús er með nýlegri innréttingu og tækjum. Eldunareyja skilur að stofur og eldhús. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum upprunalegum skápum og útgengt á svalir í austur. Tvö góð barnaherbergi. Baðherbergið er upprunalegt og er með baðkari og glugga.

Ris: Gengið upp stiga í alrými. Alrýmið skiptist í sjónvarpshol og stofu. Baðherbergið er nýlega endurnýjað og án sturtu/baðkars en auðvelt að koma fyrir baðkari og eru allar lagnir til þess. Tvö góð svefnherbergi sem eru undir súð.


GÓLFEFNI: Fallegt harðparket er á flestum gólfum nema teppi er á stigum og flísar á baðherbergjum.


Fyrir um 10 árum var skipt um járn á þaki og síðastliðið sumar var bæði skólplögn og drenlögn endurnýjuð. Kominn er tími á endurmúrun og endurnýjun á gluggum í húsinu og liggur tilboð fyrir frá því í fyrra. Stefnt er á að fara í þessar framkvæmdir á næstunni.


Auðvelt er að skipta eigninni í tvær íbúðir aftur eða nýta hana fyrir stóra fjölskyldu. Eign með mikla möguleika.


Allar nánari upplýsingar veita Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 23074 eða olafur@miklaborg.is og Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
155.000.000 kr.956 þ./m²
+349,3% á 14 árum
26. júlí 2012Fyrsta sala
34.500.000 kr.335 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kvisthagi 10

107 Reykjavík
155.000.000 kr.956 þ./m²
Fjölbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1954TegundFjölbýlishúsStærð162,2 m²Herbergi8InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2027891Fasteignamat138.550.000 kr.Brunabótamat78.700.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 226 myndir

Upp ↑