fasteignasölur.is
Þessi eign er ekki lengur í sölu.
Háteigur 8
1 af 10

Um eignina

SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGUN.    Ólafia Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna, í byggingu, endaraðhús í þriggja húsa raðhúsi við Háteig 8, 250 Garði.   Eignin Háteigur 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 233-2960, birt stærð 117.0 m2 , til viðbótar er fylgieining 12m2 geymsluhús.   
Vel skipulagt og fjölskylduvænt  raðhús í nýju hverfi í Garði, Suðurnesjabæ.   Við húsið er gert ráð fyrir tveimur einkabílastæðum.  Húsið er timburhús, á einni hæð, byggt á steinsteyptum sökkli og klætt að utan með liggjandi báruklæðningu í dökk gráum lit.  Húsið verður afhent fullklárað að innan sem utan.  
Ath. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar. 
Afhending eftir samkomulagi. 
HÚSINU VERÐUR SKILAÐ FULLFRÁGENGNU AÐ UTAN SEM INNAN - SJÁ NÁNAR Í SKILA- OG BYGGINGALÝSINGU SELJANDA.   

Innra skipulag: Húsið samanstendur af forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónaherbergi, tveimur barnaherbergjum, baðherbergi, geymslu og inntaksrými þar innaf. 
Forstofa:  Rúmgóð forstofa með fatahrislum. 
Alrými:  Stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými.  Gert er ráð fyrir veglegri eldhúsinnréttingu, með tilheyrandi tækjum.
Baðherbergi:  Innrétting með handlaug. Vegghengt salerni og sturtuklefi. Tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hjónaherbergi:  Rúmgott hjónaherbergi með veglegum fatahirslum.   
Barnaherbergi:  Tvo barnaherbergi inn af anddyri. Fatahirslur í báðum herbergjum. 
Ytra skipulag: 
Klæðning: Liggjandi báruklæðning
Bílaplan: Steypt bilaplan framan við húsið.
Lóð: Tyrft lóð.  Pallur aftan við húsið með heitum potti, samkvæmt teikningu.
Fylgieining: 12 fermetra geymslueining að tengundinni Sky 12. 
Sorpgeymslur: Framan við húsið á lóðamörkum 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi miðast við hlutfall af heildarfasteignamati  - almennt 0,8 % , 04% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 898 8242, tölvupóstur ola@logheimili.is.

Háteigur 8

250 Garður
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
TegundRað-/parhúsStærð129 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23329608Fasteignamat39.300.000 kr.
Skráð hjá
Lögheimili Eignamiðlun ehf.
HeimilisfangHlíðasmári 2, Kópavogi, 201Sími530-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 10 myndir

Upp ↑