fasteignasölur.is
Reynihlíð 8
1 af 40

Um eignina

EIGNAVER 460-6060

Reynihlíð 8A, 604 Akureyri.
Glæsileg 5 herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr við Reynihlíð í Lónsbakkahverfi- samtals 182,5 m²


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í einu alrými, 4 svefnherbergi en eitt þeirra er nýtt sem sjónvarpsrými í dag, tvö baðherbergi, fataherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og eldhús eru í einu opnu rými.
Eldhúsinu var breytt 2023 og allir frontar sérsmíðaðir hjá Heiðguð byggir og ný eyja sett upp. Steinn í bekkarplötum. Mjög gott skápapláss og innfelldur ísskápur og uppþvottavél.
Harðparket er á gólfum utan forstofu, baðherbergis innaf hjónaherbergi og bílskúrs. 
Stofa, gólfsíðir gluggar bæði til norðurs og austurs og tveir útgangar út á steypta verönd. Steyptar stéttar með allri íbúðinni og verandir sunnan og norðan við íbúðina.
Svefnherbergin eru fjögur, harðparket og dökkir fataskápar eru í tveimur herbergjum. Einu þeirra hefur verið breytt í sjónvarpsrými.
Hjónaherbergið er stórt með innréttuðu fataherbergi og baðherbergi með útgönguhurð út að heitum potti á verönd.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, Fibo plötur í sturtu rými og innfelld lýsing.
Þvottahúsið er með harðparketi á gólfi og þar er stór hvít háglans innrétting með innbyggðum ísskáp og frystiskáp sem fylgja með við sölu.
Baðherbergi er með harðparketi á gólfi og  Fibo plötur á sturtuveggjum.
Bílskúrinn er 35,4 m² að stærð, Epoxy á gólfi og með góðum geymsluskápum. Rafdrifinn innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð inn í bílskúrinn. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúrinn.
Geymsluloft er yfir fataherbergi, fellistigi.  

Stórt steypt bílastæði fyrir 2 - 3 bíla og snjóbræðsla í öllum stéttum og plani. Góðir skjólveggir. 
Heitur pottur er á á verönd til vesturs/norðurs.



Annað
- Hljóðdempandi dúkar í lofti alrýmis
- Gólfhiti í öllum rýmum.
- Varmaskiptir á heitavatnskerfi.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu

Nánari upplýsingar veita
Arnar   s: 898-7011    / arnar@eignaver,is
Begga  s: 845-0671   / begga@eignaver.is


 

Reynihlíð 8

604 Akureyri (dreifbýli)
128.900.000 kr.706 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2019TegundRað-/parhúsStærð182,5 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF25056833Fasteignamat104.950.000 kr.Brunabótamat105.850.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑