fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Las Colinas
1 af 10

Um eignina

Spanarheimili kynnir: Glæsilegar íbúðir á jarhæð á Las Colinas. Íbúðirnar bjóða upp á einstaklega rúmgott útisvæði. Þessar fallegu íbúðir á jarðhæð bjóða upp á gott jafnvægi milli inni og útisvæðis. Íbúðirnar eru frá  146 m² upp í 157 m² með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og einni gestasnyrtingu, eldhús er opið við stofu þaðan sem útgengt er út á rúmgóða verönd eða á bilinu 69 m² til 71 m² sem hentar vel til að njóta veðurblíðunnar. Þar að auki fylgir sérgarður sem er frá 118 m² upp í 291 m² – tilvalinn fyrir afslöppun eða samveru utandyra. Útsýnið sameinar sjávarútsýni og golfvöll, sem skapar rólegt og notalegt umhverfi. Í sameign eru vel hirtir garðar og sameiginleg sundlaug fyrir íbúa. Allar íbúðir eru með bílastæði og geymslu. Verð frá 625.000€ til 645.000€. Um svæðið: Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2349 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170425/ground-floor-apartments-in-las-colinas-golf/

Spánarheimili kynnir - Las Colinas

1053 Spánn - Costa Blanca
91.600.000 kr.627 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð146 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 10 myndir

Upp ↑