fasteignasölur.is
Lundur 76
1 af 31

Um eignina

CROISETTE kynnir í einkasölu glæsilegt 225 fm raðhús í Lundi 76 í Kópavogi.  Eignin er á tveimur hæðum, er rúmgóð og vel skipulögð með fjórum svefnherbergjum, góðri stofu, tveimur baðherbergjum, góðu eldhúsi og 27 fm bílskúr.  Eignin er með stórum skjólsælum, sólríkum og timburlögðum palli í bakgarðinum með heitum potti.  Þetta er góð eign í vinsælu hverfi í skjólsælum Kópavogsdalnum.  Möguleiki á fimmta svefnherberginu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA NEÐRI HÆÐ Í 3-D
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EFRI HÆÐ Í 3-D


Nánari lýsing á neðri hæð:
Forstofa:  Góðir loftháir skápar, harðparket á gólfi.
Eldhús: Vel skipulagt opið eldhús með hvítlakkaðri innréttingu, tveimur ofnum, spanhelluborði, kvars í borði og eyju, rými fyrir tvöfaldan ísskáp, útdraganlegar skúffur eru undir borðum og góðir skápar fyrir ofan.  
Stofa/borðstofa: Opið og bjart rými með stofu og eldhúsi. Veggfastur hvítlakkaður sjónvarpsskenkur. Útgengt út á stóran sólpall yfir öllum garðinum, heitur pottur. Undir stiganum er góður ryksuguskápur með góðu rými fyrir annað dót. Harðparket á gólfi
Baðherbergi:  Flísalagt í hólf og gólf, "walk in" sturta með glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn, innrétting með vaski og speglaskáp.
Barnaherbergi:  Gott herbergi með skáp, harðparket á gólfi.

Nánari lýsing á efri hæð:
Hjónaherbergi: Gott herbergi með fataherbergi með rennihurð og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með tvöföldum loftháum skápum.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með góðum loftháum skápum.
Baðherbergi: Vel skipulagt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, góð sturta með innfelldum blöndunartækjum, baðkar, handklæðaofn, upphengt salerni, góð hvítlökkuð innrétting með útdraganlegum skúffum, speglaskápur yfir vaskborði.
Sjónvarpsstofa: Gott rými sem er nýtt sem sjónvarpsherbergi en hægt með lítilli fyrirhöfn að gera fimmta svefnherbergið. Útgengt út á suðursvalir. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Flísalagt gólf, góð innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og vaskaborð.

Bílskúr: 27 fm bílskúr með fjarstýrðum opnara.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Croisette Iceland ehf
199.700.000 kr.884 þ./m²
+134,9% á 7 árum
31. júlí 2019Fyrsta sala
85.000.000 kr.376 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lundur 76

200 Kópavogur
199.700.000 kr.884 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2019TegundRað-/parhúsStærð225,9 m²Herbergi7InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25038041Fasteignamat175.950.000 kr.Brunabótamat132.250.000 kr.
Skráð hjá
Croisette Iceland ehf
HeimilisfangKirkjuteigur 21, 105 RvíkSími569-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑