1 af 23
Um eignina
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteigir.is kynna:
Hátún 9, Eskifirði.
Fallegt og vel staðsett einbýlishús þar sem stutt er í skóla, leiksvæði og helstu þjónustu. Húsið býður upp á skemmtilegt og fjölskylduvænt skipulag á þremur pöllum með björtum og góðum rýmum.
Á neðsta palli er rúmgóður bílskúr með kaldri geymslu inn af, svefnherbergi, snyrting, geymsla og gott vinnu- eða tómstundarými.
Á miðpalli er aðalinngangur hússins með forstofu og gangi. Þar eru tvö svefnherbergi auk notalegrar stofu með stórum útsýnisglugga og arni sem skapar hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.
Á efsta palli er að finna eldhús, svefnherbergi og baðherbergi með samliggjandi þvottahúsi. Úr þvottahúsinu eru bakdyr og því gott aðgengi að heita pottinum en úr honum er dásamlegt útsýni yfir fjörðinn og Hólmatind. Úr eldhúsinu er lítill stigi niður í stofuna sem gefur húsinu skemmtilegan svip og tengir sameiginleg rými vel saman.
Húsið er tengt hitaveitu. Gólfhiti er á efri tveimur pöllunum. Við húsið eru bílastæði fyrir tvo bíla.
Hér er um að ræða áhugaverða eign á góðum stað sem býður upp á mikla möguleika fyrir fjölskyldur sem sækjast eftir rúmgóðu heimili í grónu og fjölskylduvænu hverfi. Stutt er í grunnskóla og leiksvæði fyrir börn. Einnig er stutt út í náttúruna og hvergi styttra á skíðasvæðið í Oddskarði. Dagvöruverslun er í göngufæri.
Stæði fyrir 2 bíla eru við húsið.

Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Lindin
59.900.000 kr.351 þ./m²
+144,5% á 10 árum
30. ágúst 2016Fyrsta sala
24.500.000 kr.144 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hátún 9 LÆKKAÐ VERÐ
735 Eskifjörður
TegundEinbýlishúsStærð170,5 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
59.900.000 kr.351 þ./m²
▼ Lækkað 1. nóvember 2026 um 5,0 m.kr. · var 64.900.000 kr.
Byggingarár1967InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2170233Fasteignamat44.800.000 kr.Brunabótamat85.200.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 23 myndir
Upp ↑