1 af 15
Um eignina
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg 13.000 fm. eignarlóð undir sumarhús sem stendur á skipulögðu sumarhúsasvæði í Heklubyggð, Rangárþingi ytra. Einstök náttúrufegurð er á svæðinu með miklu útsýni, sést meðal annars í Heklu, Bjólfell og Búrfell. Stutt inná hálendið, aðeins 1,5 klst. frá bænum og í Landmannalaugar frá húsi um 1-2 klst. Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk, skv. deiliskipulagi.
Lóðin er stór og gróin. Samkvæmt skipulagsskilmálum eru byggingarreitir rúmir og heimilt að reisa tvö sumarhús á hverri lóð, þar sem því verður komið við. Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra. Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru staðsett á hverri lóð fyrir sig.
** ATH seljandi skoðar einnig skipti **
Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi.
HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga.
UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Rafmagn og kalt vatn komið að lóðarmörkum.

Hekluhraun 12
851 Hella (dreifbýli)
5.000.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF234231910Fasteignamat3.130.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 15 myndir
Upp ↑