fasteignasölur.is
Hafnartún 28
1 af 19

Um eignina

Fasteignamiðlun kynnir eignina Hafnartún 28, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0315 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hafnartún 28 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0315, birt stærð 123.7 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða parhús á tveimur hæðum með góðum garði og fallegu útsýni yfir fjörðinn. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, 4 svefnherbergjum, baðherbergi með útgang út á yfirbyggðar svalir, gestasalerni og þvottahúsi. 
Á neðri hæð eignarinnar eru rúmgóð forstofa, gestasalerni, 3 svefnherbergi, geymsla og þvottahús. Á efri hæð eignarinnar eru eldhús, stofa, borðkrókur, svefnherbergi með mjög góðu skápaplássi og baðherbergi. Útgangur er úr borðstofu út í garð. Miklar endurbætur voru gerðar árið 2020-2021 en þá voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar í elldhús, baðherbergi og gestasalerni, skipt um gler og parket endurnýjað. 

Neðri hæð: 
Forstofa: er flísalögð með ágætis skápaplássi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi.
Svefnherbergi: eru þrjú á neðri hæð með parket á gólfi
Gestasalerni: hefur verið gert upp með flísum á gólfi, þiljum á vegg, salerni og vask. 
Þvottahús: er með sérútgang, dúk á gólfi og góðri innréttingu. 

Efri hæð:
Eldhús: er með ljósri innréttingu og parket á gólfi. 
Stofa/ borðkrókur: liggja saman með parket á gólfi. 
Svefnherbergi: er með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum frá Brúnás. 
Baðherbergi: er með walk in sturtu með þiljum á vegg og flísum á gólfi, salerni, innréttingu og vask. Útgangur er út á yfirbyggðar svalir. 
Garður: útgangur er út í garð frá stofu. Timbur pallur er út í garði og grasbali. 



 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignamiðlun
49.900.000 kr.403 þ./m²
+345,5% á 14 árum
10. desember 2012Þinglýstur kaupsamningur
11.200.000 kr.91 þ./m²
+77,6% á 5 árum
13. mars 2008Fyrsta sala
6.306.000 kr.51 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hafnartún 28

580 Siglufjörður
49.900.000 kr.403 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1983TegundRað-/parhúsStærð123,7 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21303151Fasteignamat40.850.000 kr.Brunabótamat74.350.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignamiðlun
HeimilisfangGrandagarður 5, 101 ReykjavíkSími575-8500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑