fasteignasölur.is
Dvergaholt 5 - 401
1 af 35

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Dvergaholt 5 - 401

**Nýbygging - laus við kaupsamning**

Ný glæsileg fjögurra herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu, svalir snúa til vesturs. Glæsilegt útsýni er úr eigninni.  
Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 117,8 fm., þar af er geymsla 3,9 fm.. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.


Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi. 

Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp. 
Eldhús og stofa í opnu rými, útgengi út á svalir til vesturs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi ásamt eyju, þar eru skúffur og helluborð. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og í votrými í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð. Loftræstistokkur/stýrikerfi er í skáp fyrir ofan þvottavél og þurrkara og í honum er því ekkert bak eða hillur. 
Svefnherbergin eru þrjú öll eru með parketi á gólfi og fataskápum.

Ath að myndir eru úr sýningaríbúð en sýna innréttingar, skápa og fleira sem er eins milli íbúða. 

Smelltu hér til að sjá 3D vefsjá af íbúðinni

*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu. Nánari upplýsingar um innréttingar og gólfefni má sjá á myndum.
 
Laus til afhendingar við kaupsamning
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess er óskað
Verktaki: Trétak ehf.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Dvergaholt 5 - 401

603 Akureyri (utan Glerár)
97.500.000 kr.828 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð117,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF252562111Fasteignamat72.600.000 kr.Brunabótamat82.810.000 kr.
Skráð hjá
Byggð
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑