fasteignasölur.is
Lautir 9
1 af 10

Um eignina

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einstaka útsýnislóð í nágrenni við Geysi í Haukadal. Lóðin er eignarlóð 7023,6 fm. Góð staðsetning innan Gullna hringsins.
Mjög gott útsýni er að Bjarnarfelli, Geysi og náttúruperlum á svæðinu. Stór hluti lóðar er þakin skógi og kjarri og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands og stutt er inn á hálendi. Afþreying í nágrenni er afar fjölbreytt, flúðasiglingar, hestaleigur, snjósleða og fjórhjólaleigur. Golfvellir og sundlaugar eru einnig í næsta nágrenni. Lautir 9 er einungis í u.þ.b. þriggja km fjarlægð frá Geysi í Haukadal.


Innan hverrar lóðar er heimilt að byggja allt að þrjú hús: Sumarhús, gesthús og geymslusmáhýsi.
Samanlagt byggingarmagn þessara bygginga má vera allt að 250 fm þar af má gesthús vera 40 fm geymslusmáhýsi 20 fm. 
Kalt vatn og rafmagn á svæði. Sameiginleg rotþró er á svæðinu. 

Greitt er árgjald í félag á svæði.
Lóðir á svæðinu munu hafa umgengisrétt og eignarrétt 2,5% á um 20ha almennings- og útvistarsvæði.
Svæðið liggur umhverfis skipulagðar lóðir Holtslóðar.
Myndir í auglýsingu sýna umhverfi og útsýni á svæðinu í nágrenni lóðar.
.
Einkar vel staðsett spennandi eignarlóð með mikla möguleika á líflegu svæði, þar sem afþreying og þjónusta er í næsta nágrenni og Gullfoss og Geysir skammt undan.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. 


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 




 

Lautir 9

806 Selfoss (dreifbýli)
9.000.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF23461727Fasteignamat3.260.000 kr.
Skráð hjá
101 Reykjavík
HeimilisfangHáaleitisbraut 58-60, 108 ReykjavíkSími511-3101

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑