fasteignasölur.is
Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
Nýtt
1 af 315

Um eignina

Miklaborg kynnir: Glæsilega Penthouse íbúð á efstu hæð, 7.hæð við Ánanaust 3 í Reykjavík. Íbúðin er eina íbúðin á hæðinni í stigahúsinu. Einstök 3ja herbergja , 236,3 fm íbúð með bílskúr og tveimur bílastæðum í bílakjallara. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, þrjú baðherbergi, tvö rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu, þrennar svalir sem eru skráðar 11,7 m², 15,8 m² og 59,1 m. Einstakt sjávarútsýni og aukin lofthæð prýðir eignina.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, Löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Íbúð 701 er á 7. hæð og nýtur útsýnis í allar áttir og einnig yfir fallegan inngarð þar sem íbúar hafa aðgang að verslun og þjónustu. Íbúðarrýmið skiptist í stórar og bjartar stofur með óviðjafnanlegu útsýni og er eldhús til hliðar við stofur. Þvottahús er í íbúð og tvö svefnherbergi og er hjónaherbergi með sér fataherbergi. Sér baðherbergi fylgir báðum svefnherbergjum auk þess sem gestabaðherbergi er í alrými. íbúðin er skráð 205,5 m² með geymslu en þar fyrir utan er bílskúr skráður 30,8 m². Íbúðinni fylgja þrennar svalir sem eru skráðar 11,7 m², 15,8 m² og 59,1 m². Mögulegt er að vera með hitaveitu pott á svölum. Bílastæði eru merkt B29 og B30.

Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Íbúðin er með gólfhita.

Athugið: Myndefnið er unnið með aðstoð gervigreindar (AI).

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, Löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is



 

Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3

101 Reykjavík
Tilboð
Fjölbýlishús2 svefn · 3 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð236,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2519598Fasteignamat188.000.000 kr.Brunabótamat168.700.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 315 myndir

Upp ↑