fasteignasölur.is
Norðurgata 25
1 af 2

Um eignina

HÚS fasteignasala og Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s: 862 1996 kynna í einkasölu eignarlóð í Tjarnabyggð.  Norðurgata 25, Sveitarfélaginu Árborg. 

Lóðinni fylgir ca. 20 fm íbúðagámur sem búið er að setja einhalla þak með bárujárni á gáminn.  Gámurinn stendur á jarðvegsskrúfum. 
 
Búgarðalóð –10.392 fm eignarlóð í Tjarnabyggð í Árborg, milli Selfoss og Eyrarbakka. Lóðin er í um 40 mínutna akstri frá Reykjavík og í um 4 km fjarlægð frá Selfossi.Tjarnabyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu sem þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Árborg og viðkomandi veitur sjá um allan rekstur svæðisins eins og snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn. 

Nánar um Tjarnabyggð:
Heimilt er að byggja allt að 1.500 fm húsnæði á jörðinni og þar af íbúðarhúsnæði allt að 1.000 fm. Samtals byggingarmagn útihúsa og íbúðarhúss skal þó ekki vera stærra en 1.500 fm samtals.
Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa. Á milli klasa eru reið- og göngustígar.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar.
 
Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun er hjá Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali  s. 862 1996 eða steindor@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 

Norðurgata 25

801 Selfoss (dreifbýli)
13.800.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF23409041Fasteignamat14.050.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 2 myndir

Upp ↑