1 af 28
Um eignina
Spánarheimili kynnir: Einstakt einbýli aðeins 20 metra frá La Mata ströndinni.Húsið sem er á einni hæð auk sérrýmis á efri hæð og þaksvölum er einungis um 20 metrum frá La Mata ströndinni sem er ein fallegasta ströndin á Costa Blanca svæðinu enda merkt "bláa fánanum". Húsið er að nokkru leiti endurnýjað sbr. skápar, gluggar og efra einkarými en efra rými er ekki inní fm. tölu. Húsið samanstendur af þremur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Aflokað eldhús með útgangi út í garð, opin stofa og borðstofa. Góður bílskúr er einnig sambyggður húsinu. Gróin 260 fm garður með möguleika á að útbúa einkasundlaug. Húsgögn og heimilistæki fylgja. Öll þjónusta er svo sannanlega í göngufæri eins og fjöldi veitingastaða, kaffihús, verslanir, apótek og heilsugæslustöð. Hér er um að ræða einstakt tækifæri á að eignast einbýli "á ströndinni" en slíkum eignum fer hratt fækkandi á markaðinum.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2395
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170472/detached-house/resale/spain/costa-blanca-south/torrevieja/torrevieja/
Spánarheimili kynnir - Torrevieja
1053 Spánn - Costa Blanca
87.200.000 kr.1.147 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 1 bað
TegundEinbýlishúsStærð76 m²Herbergi4BílskúrJáFasteignanúmerF0
Allar 28 myndir
Upp ↑


























