fasteignasölur.is
Hólmasund 12
1 af 26

Um eignina

Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja 125,5 fm hæð með sérinngangi við Hólmasund 12, 104 Reykjavík. Hólmasund er róleg botnlangagata í rótgrónu og fjölskylduvænu íbúðahverfi.
Íbúðin er á efri hæð í tvíbýlishúsi og telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er björt og rúmgóð, með aukinni lofthæð að hluta og síðum gluggum. Stofa, borðstofa og eldhús liggja saman og útgengt er úr stofu út á góðar svalir sem snúa til suðvesturs. Vinsamlega hafið samband við Guðnýju Maríönnu lgf. í síma 899-5447 fyrir skoðun og frekari upplýsingar. 

Forstofa: Sérinngangur, hátt til lofts, skápur og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Björt með gegnheilu parketi á gólfi. Aukin lofthæð og útgengt út á svalir úr stofu. 
Eldhús: Eikar innrétting, eyja er í miðju rýminu og gott vinnupláss. Flísar á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með gegnheilu parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með gegnheilu parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III: Gegnheilt parket á gólfi og útsýni að Esjunni. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu og miklu skápaplássi, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Þvottahús: Sér þvottahús með góðri innréttingu, skápu, vaski og vinnuaðstöðu.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er inn af þvottahúsi með hillum og skáp. Væri möguleika að nýta sem vinnuherbergi eða annað.
Bílastæði: Tvö bílastæði. Alls eru 36 bílastæði eign Hólmasunds 4-20 og skiptast milli íbúða. 
Sameiginleg geymsla með neðri hæð er á jarðhæð. 
Gróinn afgirtur garður er í kringum húsið. 
Gluggar með góðri hljóðeinangrun. Nýir gluggar að hluta.

Góðir göngustígar og útivistarreitir eru í hverfinu og er umhverfið mjög fjölskylduvænt. Stutt er í almenna þjónustu, Holtagarðar eru í næsta nágrenni og Laugardalurinn í göngufæri. Skólar í nágrenninu eru Langholtsskóli, Vogaskóli, Laugarnesskóli og Menntaskólinn við Sund, auk nokkurra leikskóla.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Guðný Maríanna lgf. í síma 899-5447 eða gudnymarianna@remax.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
104.900.000 kr.836 þ./m²
+12,0% á 3 árum
16. nóvember 2023Þinglýstur kaupsamningur
93.700.000 kr.747 þ./m²
+69,1% á 6 árum
23. nóvember 2017Fyrsta sala
55.400.000 kr.441 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hólmasund 12

104 Reykjavík
104.900.000 kr.836 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár2000TegundHæðStærð125,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22468701Fasteignamat101.600.000 kr.Brunabótamat65.550.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑